Alþjóðlegur dagur belgjurta. Belgjurtir á borð við baunir, linsubaunir og kjúklingabaunir eru sannkallaðar næringarsprengjur. Belgjurtir eru ræktaðar bæði til manneldis og í dýrafóður. Fjöldinn allur af tegundum belgjurta eru ræktaðar víða um heim og stuðla að fæðuöryggi, góðri næringu og gagnast við að stemma stigu við loftslagsbreytingum og viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika.
Belgjurtir hafa gegn mikilvægu hlutverki í mataræði mannsins í þúsundir ára. Nú njóta þær viðurkenningar, ekki aðeins fyrir næringargildið heldur einnig fyrir framlag þeirra til sjálfbærs landbúnaðar, fæðuöryggis og heilbrigðs umhverfis.
Hér eru fimm staðreyndir um mikilvægi belgjurta fyrir plánetuna og heimsbyggðina.
-
Belgjurtir eru næringarríkar.
Stundum er þeim líkt við næringarsprengjur. Þær búa yfir hágæða jurta-eggjahvítuefnum og eru afbragðs uppspretta trefjaefnis. Þá státa þær af verðmætum örnæringarefnum eins og járni, fólati, kalíum og magnesium. Ólíkt mörgum dýraafurðum er kólesterol ekki að finna í belgjurtum og þær eru fitusnauðar. Þær eru því hjartavænar. Af þessum sökum mæla heilsufræðingar og næringarfræðingar gjarnan með belgjurtum.
-
Belgjurtir eru vopn gegn hungri
Belgjurtir eru mikilvæg uppspretta eggjahvítuefnis (proteins) sérstaklega þar sem dýra-eggjahvítuefni er dýrt eða af skornum skammti. Þær geymast vel og auðveldlega og því algeng matvara á borðum víða um heim. Auk þessa búa beljurtir yfir helstu vítamínum og steinefnum. Af þeim sökum er gott að bjóða upp á þær til að auka fjölbreytni matar, efla næringu og fæðuöryggi. FAO, Matvæla-og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna segir belgjurtir vopn í baráttunni gegn hungri og í viðleitni til að efla næringu veikburðra hópa.
-
Belgjurtir eru umhverfisvænar
Belgjurtir hafa lágt „vatnsfótspor” , það er að segja að það þarf minna vatn til að rækta þær en flest annað. Sama gildir um kolefnisfótsporið, sem er mun minna en þegar dýra-eggjahvítuefni er annars vegar. Þær þurfa minni vökvun og minni áburð og eru ræktanlegar víðast hvar í heiminum. Þar sem framleiðslan er kolefnissnauð dregur hún úr umhverfisáhrifum matvælaframleiðslu í heiminum.
-
Belgjurtir stuðla að líffræðilegum fjölbreytileika
Belgjurtir auka fjölbreytni í landbúnaði þegar þær eru notaðar í skiptirækt eða samræktunarkerfum, sem þýðir að þær hjálpa til við að skapa fjölbreyttara og seigari landbúnað. Margar tegundir af belgjurtum eru einnig loftslagsþolnar og geta vaxið í þurrum eða næringarsnauðum jarðvegi þar sem aðrar nytjaplöntur eiga erfitt uppdráttar.
Þessir eiginleikar gera belgjurtir mikilvægar til að aðlaga landbúnaðarhætti að breyttu loftslagi. Að auki styður ræktun belgjurta við lífsviðurværi á landsbyggðinni með því að veita bændum, þar á meðal konum og ungmennum, efnahagsleg tækifæri, sem hjálpar til við að styrkja matvælakerfi á staðnum og seiglu samfélagsins.
-
Hluti af norrænum næringarráðleggingum
Belgjurtir eru mikilvægur hluti af matarmenningu í mörgum löndum, en víða, þar á meðal á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum, er neyslan þó tiltölulega lítil. Belgjurtir eru í auknum mæli notaðir sem valkostur við kjöt, þar sem þeir eru næringarríkur matur með hátt próteininnihald og lágt umhverfisfótspor. Norræn næringarfræðiyfirvöld mæla opinberlega með því að auk hlut þeirra í reglulegu mataræði á Norðurlöndum vegna þess að þær hafa lítil áhrif á loftslag og veita mikilvæg næringarefni eins og prótein, trefjar og steinefni, samkvæmt norrænum næringarráðleggingum, sem Norræna ráðherranefndin hefur gefið út.
