A-Ö Efnisyfirlit

Beygðu þig eins og Ban

Flickr Matt Madd

Flickr Matt Madd

21.júní 2015. Ekki örvænta þótt líkaminn sveigist ekki eins og gúmmí, eða að hugurinn sé ekki kyrr. Iðkun jóga er kjörin aðferð til að öðlast vellíðun í ys og þys nútímans.

Ban does yogaSameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað jóga alþjóðlegan dag og það er engin tilviljun að sumarsólstöður, þegar dagur er lengstur á norðurhveli jarðar, séu helgaðar jóga. Jónsmessan hefur mikilvæga menningarlegar og trúarlega þýðingu víða um heim. 

Að mati Sameinuðu þjóðanna eru kostir jóga ótvíræðir og samræmast hugsjónum samtakanna. Jóga er einföld og aðgengileg aðferð, til þess að efla líkamlega og andlega heilsun og vellíðan og stendur öllum til boða. Jóga eflir virðingu hvers og eins fyrir öðrum og jörðinni sem við deilum. Og jóga fer ekki í manngreinarálit; upp að vissu marki geta allir iðkað jóga, án tillits til líkamsburða, aldurs eða hæfni.yogalogo 2

Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna komst að raun um ágæti jógaiðkunar í heimsókn til Indlands á síðasta ári.

„Ég uppgötvaði þetta þegar ég reyndi í fyrsta skipti að framkvæma asana æfinguna, trjástellingu fyrir byrjendur. Það tók mig nokkra stund að ná jafnvægi en þegar mér hafði tekist það fann ég hina einföldu ánægju,“ sagði Ban.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í árslok 2014 að alþjóðadagur jóga skyldi haldinn í fyrsta skipti 21.júní 2015.