Alþjóðlegur dagur gegn refsileysi við glæpum gegn blaðamönnum. Að binda enda á refsileysi fyrir glæpi gegn blaðamönnum er ein mikilvægasta og flóknasta áskorun síðari tíma. Það er nauðsynleg forsenda þess að tryggja tjáningarfrelsi og aðgang allra borgara að upplýsingum.
Alþjóðlegur dagur gegn refsileysi við glæpum gegn blaðamönnum er haldinn 2.nóvember ár. Að þessu sinni er sjónum beint að því hvernig ný tækni og vopn eru að breyta þeim ógnum sem blaðamenn standa frammi fyrir, einkum á átakasvæðum.
Þótt aðferðirnar sem beitt er gegn blaðamönnum séu að breytast komast þeir sem bera ábyrgð á drápum á þeim enn hjá réttvísinni. Skaðinn af refsileysi nær út fyrir fórnarlömbin og fjölskyldur þeirra. Þegar ekki er refsað fyrir árásir, getur það leitt til þess að fréttaflutningur í þágu almannahagsmuna sé kæfður, þar á meðal rannsóknir á spillingu, mannréttindabrotum og glæpum.
Á undanförnum árum hefur minnkandi fjölmiðlafrelsi um allan heim gert blaðamenn berskjaldaðri fyrir vaxandi ógnum, þar á meðal síauknum árásum, áreitni fyrir dómstólum með málsóknum sem ætlað er að þagga niður í opinberri umræðu (SLAPP-málum), geðþóttavarðhaldi, ógnunum og morðum, sem gerir sjálfstæða blaðamennsku sífellt hættulegri.
Lamandi áhrif á samfélagið
Rómanska Ameríka og Karíbahafið er áfram það svæði þar sem flestir blaðamenn eru myrtir, samkvæmt skýrslu framkvæmdastjóra UNESCO um öryggi blaðamanna og hættuna af refsileysi.
Frá árinu 1993 hafa yfir 1.700 blaðamenn verið drepnir fyrir að flytja fréttir og miðla upplýsingum til almennings. Í níu af hverjum tíu tilvikum er morðingjunum ekki refsað, samkvæmt gagnagrunni UNESCO um myrta blaðamenn. Refsileysi leiðir til fleiri morða og er oft einkenni harðnandi átaka og hruns laga og dómskerfa.
Þótt morð séu öfgafyllsta form ritskoðunar fjölmiðla verða blaðamenn einnig fyrir ótal öðrum ógnum – allt frá mannránum, pyndingum og öðrum líkamlegum árásum til áreitni, einkum í stafrænu umhverfi.
Spjótunum beint að kvenkyns blaðamönnum
Ógnir og árásir bitna sérstaklega á kvenkyns blaðamönnum, einkum þær sem eiga sér stað á netinu. Samkvæmt umræðuskjali UNESCO, The Chilling: Global trends in online violence against women journalists, sögðust 73 prósent kvenkyns blaðamanna sem tóku þátt í könnuninni hafa orðið fyrir hótunum, ógnunum og svívirðingum á netinu í tengslum við störf sín.

Aðgerðaáætlun SÞ um öryggi blaðamanna
Aðgerðaáætlun Sameinuðu þjóðanna um öryggi blaðamanna og refsileysi er fyrsta samstillta átakið innan samtakanna til að taka á árásum og refsileysi vegna glæpa gegn blaðamönnum, með heildstæðri nálgun og þátttöku margra hagsmunaaðila.

Bakgrunnur
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna lýsti 2. nóvember „alþjóðlegan dag gegn refsileysi vegna glæpa gegn blaðamönnum“ með samþykkt ályktunar A/RES/68/163. Dagsetningin var valin til minningar um morð á tveimur frönskum blaðamönnum í Malí 2. nóvember 2013.
