A-Ö Efnisyfirlit

Blóðbaðið í Darfur ber að stöðva

Darfur1

Darfur1

9.febrúar 2016. Ofbeldisalda hefur enn á ný riðið yfir Darfur-hérað í Súdan og tugþúsundir orðið að flýja heimili sín.

Aristide Nononsi, mannréttindasérfræðingur á vegum Sameinuðu þjóðanna segir brýnt að binda enda á ofbeldisverk sem kalla á aukna vernd og mannúðaraðstoð.

Alvarleg mannréttindabrot hafa verið framin í átökum stjórnarhersins og Frelsishers Súdans (SLA). Sveitir Sameinuðu þjóðanna hafa aðeins takmarkaðan aðgang að sumum svæðum og því er erfitt að meta hversu margir hafa verið flæmdir burt eða flúið á brott frá heimilum sínum

Á þriðja tug þúsunda hafa flúið átökin í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði. Sveit SÞ í héraðinu, UNAMID, segist hafa skotið skjólshúsi yfir 21.338 flóttamenn frá Suður-Súdan frá því í byrjun þessa mánaðar. Þá hafa 15.000 leitað til mið-Darfur að sögn Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP). Marta Ruedas hjá UNDP segir ástandið „alvarlegt“ og að flóttafólkið vanhaig um „allt sem hægt er að hugsa sér.“

„Eitt er víst og það er að ofbeldi er ekki lausnin á því alvarlega ástandi sem ríkir í Súdanm,“ segir mannréttindasérfræðingurinn Nononsi í fréttatilkynningu. „Ég hvet Súdan-stjórn til að skapa forsendur fyrir opnum viðræðum og tryggja þátttöku allra vopnaðra hópa svo að stíga megi skref í átt til friða og sátta.“