A-Ö Efnisyfirlit

Börn deyja vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna gegn Kúbu

Barn er bólusett gegn mörgum sjúkdómum á heilsugæslustöð á Kúbu. Mynd: © UNICEF
Barn er bólusett gegn mörgum sjúkdómum á heilsugæslustöð á Kúbu. Mynd: © UNICEF

Bandaríkin. Kúba. Börn deyja á Kúbu vegna þess að læknar hafa ekki aðgang að nauðsynlegum lyfjum, sagði Volker Türk, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, í harðorðri aðvörun á mánudag. Hann kallaði eftir því að viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn eyríkinu yrði aflétt tafarlaust, þar sem þær yllu „víðtækum skaða“.

Eldsneytishömlurnar voru settar á í ársbyrjun 2026 og viðskiptaþvinganir utan lögsögu voru nýlega.  Þetta kemur niður á almenningi á Kúbu, sérstaklega þeim sem höllustum standa fæti benti Türk á.

„Börn deyja vegna þess að læknar skortir aðgang að nauðsynlegum lækningavörum og lyfjum. Þetta er óásættanlegt.“

Havana, Kúbu, 2023. Mynd: Bruno Rijsman/ Creative Commons Attribution-Share Alike 2.0
Havana, Kúbu, 2023. Mynd: Bruno Rijsman/ Creative Commons Attribution-Share Alike 2.0

Ástand versnar hratt

Aðstæður á eyjunni hafa versnað mikið síðan yfirvöld í Washington lýstu yfir neyðarástandi í janúar. Aðgerðir sem þá hófust hafa truflað eldsneytisflutninga og olíubirgðir Kúbu eru löngu síðan á þrotum. Um miðjan maí var rafmagnslaust oft og tíðum í  yfir 20 klukkustundir.

Viðbótarþvinganir voru svo settar á í maí og hafa sumar áhrif utan lögsögu. Þær beinast að kaupmönnum, vátryggjendum, skipafélögum og fjármálastofnunum. Þesssar þvinganir hafa aukið á kreppuna og grafið undan aðgangi að vatni, mat og grunnheilbrigðisþjónustu.

Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna, OHCHR, benti á uggvænlegar tölur: ungbarnadauði hefur tvöfaldast í 9,9 af hverjum 1.000 fæðingum; lífslíkur barna með krabbamein hafa lækkað úr 85 í 65 prósent; og aðeins um 30 prósent  nauðsynlegra lyfja eru fáanleg.

Eldsneytisskortur hefur haft áhrif á matvælaframleiðslu. Framleiðslan er sögð hafa dregist saman um 60 prósent og kostnaður við grunnmatvæli hefur hækkað mikið.

Mannúðaraðstoð kemst ekki til Kúbu í nægilegum mæli. Mynd: Bruno Rijsman/ Creative Commons Attribution-Share Alike 2.0
Mannúðaraðstoð kemst ekki til Kúbu í nægilegum mæli. Mynd: Bruno Rijsman/ Creative Commons Attribution-Share Alike 2.0

„Miskunnarlausar og harðar“

Türk var afdráttarlaus í lagalegu áliti sínu. „Svona alvarlegar viðskiptaþvinganir sem beinast að heilum atvinnugreinum og hafa víðtæk, miskunnarlaus og hörð áhrif á íbúa eru ósamrýmanlegir grundvallarreglum alþjóðlegra mannréttindalaga,“ sagði hann.

Mannúðaraðstoð er einnig torveld. Áhættufælin einkafyrirtæki setja hömlur sem ganga lengra en lagalegar kröfur, og truflar slíkt aðfangakeðjur og tefur innkaup.

Volker Türk mannréttindastjór
Volker Türk mannréttindastjóri. Mynd: UN Photo Loey Felipe

Stöðvun þjónustu hjá stórum skipafélögum hefur þegar haft áhrif á meira en 2.900 tonn af mannúðarmatvælum.

„Kúba stendur frammi fyrir vaxandi einangrun. Fyrirtæki eru að fara. Færri flugfélög fljúga til landsins. Það er nánast aftengt alþjóðlegum greiðslukerfum. Hækkandi sumarhiti eykur hættuna á útbreiðslu sjúkdóma sem berast með smitberum og vatni.”

„Virðið borgaraleg réttindi“

„Fellibyljatímabilið eykur enn frekar á berskjöldunina. Þetta skapar hinn fullkomna storm fyrir félagslega og efnahagslega hnignun og þjáningar kúbversku þjóðarinnar,“ sagði Türk.

Hann hvatti einnig kúbversk yfirvöld til að sýna stillingu, virða borgaraleg réttindi og sleppa öllum þeim sem hafa verið handteknir að geðþótta.