Vitundarmánuður um brjóstakrabbamein. Segja má að sterkasti áhættuþáttur brjóstakrabbameins sé einfaldlega sá að tilheyra kvenkyninu. Um 99% brjóstakrabbameina greinast hjá konum og 0,5–1% hjá körlum. Vitundarmánuður um brjóstakrabbamein, sem haldinn er ár hvert í október, er tækifæri til að styðja fólk sem brjóstakrabbamein hefur áhrif á, draga úr fordómum og minna alla á að snemmgreining og viðeigandi meðferð getur bjargað mannslífum.

Brjóstakrabbamein er sjúkdómur þar sem afbrigðilegar frumur í brjóstinu vaxa stjórnlaust og mynda æxli. Ef ekkert er að gert geta æxlin dreift sér um líkamann og orðið banvæn. Brjóstakrabbameinsfrumur myndast inni í mjólkurgöngum og/eða mjólkurframleiðandi kirtilblöðrum brjóstsins. Fyrsta stigið (staðbundið mein, in situ) er ekki lífshættulegt og hægt er að greina það snemma. Krabbameinsfrumur geta dreift sér í nærliggjandi brjóstvef (íferð). Þá myndast æxli sem valda hnútum eða þykknun.
Umfang vandans
Árið 2024 greindust áætlað 2,4 milljónir kvenna með brjóstakrabbamein og 694 000 létust af völdum þess á heimsvísu. Brjóstakrabbamein greinist í öllum löndum heims hjá konum á öllum aldri eftir kynþroska en tíðnin eykst með hækkandi aldri.
Hnattrænar áætlanir sýna sláandi ójöfnuð í byrði brjóstakrabbameins eftir þróunarstigi landa. Til dæmis greinist 1 af hverjum 12 konum með brjósta krabbamein á lífsleiðinni í löndum með mjög háa vísitölu um þróun lífsgæða (HDI) og 1 af hverjum 71 konu deyr af völdum þess. Í löndum með lága HDI-vísitölu greinist hins vegar 1 af hverjum 27 konum með brjósta krabbamein á lífsleiðinni og 1 af hverjum 48 konum deyr af völdum þess.
Hverjir eru í áhættu?
Ákveðnir þættir auka hættuna á brjóstakrabbameini, þar á meðal kvenkyn, hækkandi aldur, offita, skaðleg áfengisneysla, fjölskyldusaga um brjóstakrabbamein, fyrri geislun, frjósemissaga (t.d. aldur við fyrstu blæðingar og aldur við fyrstu meðgöngu), tóbaksnotkun og hormónameðferð eftir tíðahvörf. Um 80% brjóstakrabbameina greinast hjá konum sem hafa enga breytanlega áhættuþætti brjóstakrabbameins aðra en kyn (kvenkyn) og aldur (yfir 40 ára).
Fjölskyldusaga um brjóstakrabbamein eykur hættuna á brjóstakrabbameini, en flestar konur sem greinast með brjóstakrabbamein hafa enga þekkta fjölskyldusögu um sjúkdóminn. Þótt engin fjölskyldusaga sé þekkt þýðir það þó ekki endilega að kona sé í lítilli áhættu.
Einkenni
Brjóstakrabbamein getur valdið ýmsum samsettum einkennum, einkum á síðari stigum. Einkenni brjóstakrabbameins geta meðal annars verið:
- hnútur eða þykknun í brjósti, oft án verkja
- breyting á stærð, lögun eða útliti brjóstsins
- inndráttur, roði, holur eða aðrar breytingar á húðinni
- breyting á útliti geirvörtu eða húðarinnar umhverfis hana (vörtubaugs)
- óeðlilegur eða blóðugur vökvi úr geirvörtu.
Fólk með óeðlilegan hnút í brjósti ætti að leita læknis, jafnvel þótt hnúturinn sé ekki sársaukafullur. Flestir hnútar í brjósti eru ekki krabbamein. Meiri líkur eru á að meðferð við illkynja hnútum í brjósti beri árangur þegar þeir eru litlir og hafa ekki dreift sér í nærliggjandi eitla.

Hnattræn áhrif
Árið 2021 kom Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin á fót hnattrænu átaki gegn brjóstakrabbameini (GBCI) til að leiða saman hagaðila víðs vegar að úr heiminum og úr ýmsum geirum með það sameiginlega markmið að lækka dánartíðni af völdum brjóstakrabbameins á heimsvísu um 2,5% á ári og koma þannig í veg fyrir 2,5 milljónir dauðsfalla af völdum brjóstakrabbameins á heimsvísu fyrir árið 2040. Þrjár meginstoðir aðgerða eru: heilsuefling til snemmgreiningar, tímanleg sjúkdómsgreining og heildstæð meðferð brjóstakrabbameins.
Vissir þú?
- Brjóstakrabbamein olli áætlað 694 000 dauðsföllum á heimsvísu árið 2024 og var algengasta krabbameinið hjá konum í 164 af 186 löndum sama ár.
- Um 80% brjóstakrabbameina greinast hjá konum sem hafa enga sérstaka áhættuþætti aðra en kyn og aldur.
- Um 0,5–1% brjóstakrabbameina greinast hjá körlum.
