A-Ö Efnisyfirlit

COP21: Skipt í hærri gír

Ban Bataclan web1

Ban Bataclan web1

7.desember 2015. Viðræður ríkja um nýjan loftslagssáttmála færðust upp á ráðherrastig í dag á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París, COP21.

Drög að samkomulagi liggja fyrir eftir fyrri viku viðræðnanna, en töluvert verk bíður þó ráðherranna.
Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ýtti nýju hrinu viðræðnanna úr vör með ávarpi. Minnti hann samningamenn á að á þessum sama stað hefðu 150 leiðtogar ríkja veraldar heitið fullum stuðningi við kröftugt samkomulag.

„Ykkar hlutverk er að breyta þessari sögulegu hvatningu í varanlegt, öflugt, trúverðug og sanngjartn loftslagssamkomulag,“ sagði Ban í ræðu sinni.
Aðalframkvæmdastjórinn sagði frá því að hann hefði hitt Eriku, unga norska konu þegar hann heilsaði upp á skipverja á Tara rannsóknaskipinu á Signu í gær. „Við erum framtíðin. Ákvarðanir ykkar í dag eru framtíð okkar,“ hafði Ban eftir Eriku hinni norsku.

Í gær vottaði aðalframkvæmdastjórinn hundrað þrjátíu og einu fórnarlambi hryðjuverkaárásanna í París virðingu sína.
Ban lagði blómsveig fyrir framan Bataclan tónleikastaðinn í fylgd með Anne Hidalgo, borgarstjóra Parísar.
Því næst heimsótti hann veitingastaðinn „La Bonne Bière,“ þar sem fimm týndu lífi.

„Í dag er ég líka Parísarbúi,“sagði Ban er hann og Hidalgo drukku saman kaffi á veitingastaðnum. „Ég finn mjög til. Ég votta fjölskyldum og ástvinum allra þeirra sem létust í þessum villimannslegu árásum mínar samúð mína.“

Hann sagði að Parísar væri tákn menningar og „listarinnar að lifa“ og sagði að enduropnun kaffíhússins fyrri tíu dögum væri einnig tákn um andspyrnu gegn hryllingnum.

„Á sama hátt er ákvörðun frönsku stjórnarinnar að halda fast við að halda Loftslagsráðstefnuna, til marks um hversu staðráðin hún er í að standa vörð um gildi Sameinuðu þjóðanna: frelsi, frið, jafnfrétti og réttlæti.“

Mynd: Ban vottar hinum látnu virðingu sína fyrir utan Bataclan tónleiksalinn. SÞ-mynd/Eskinder Debebe.