A-Ö Efnisyfirlit

COP30: Danmörk og Svíþjóð í átaki gegn upplýsingaóreiðu um loftslagmál

COP30 er í Brasilíu í nóvember.
COP30 er í Brasilíu í nóvember.

COP30. Upplýsingaóreiða. Upplýsingafölsun. Loftslagsaðgerðir. Heimsfrumkvæði í þágu upplýsinga-heilinda um loftslagsmál hefur kynnt ákall um aðgerðir til til að leita raunhæfra leiða til að takast á við upplýsingaóreiðu og upplýsingafölsun,  sem miða að því að tefja eða skaða loftslagsaðgerðir.  

Heimsfrumkvæðið (The Global Initiative for Information Integrity on Climate Change) er bandalag Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, Loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna, Brasilíu og sex ríkja (Bretlands, Danmerkur, Frakklands, Marokkó, Sílé og Svíþjóðar), auk aðila borgaralegs samfélags.

Ákallið um aðgerðir er hluti af alheimsákalli um aðgerðir („Mutirão”) á vegum forystu COP30, Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin verður síðar á árinu í Brasilíu.

Aukinn sýnileiki

Markmið aðgerða „Mutirão” í þágu upplýsinga-heilinda er að fyhlkja liði og auka sýnileika áhrifaríkra aðgerða stjórnvalda, einkageirans, borgaralegs samfélags, opinberra stofnana, fræðasetra og alþjóðlegra samtaka. Valdar aðgerðir verða kynntar á COP30 í nóvember. Síðustu forvöð til að sækja um kynningu er 31.ágúst 2025.

Þetta er ði fyrsta skipti sem upplýsinga-heilidni eru til umfjöllunar hjá Aðgerðaáætlun COP (COP Action Agenda) að frumkvæði hinnar brasilísku forystu COP30.

Loftslagsbreytingar: Luiz Inácio Lula da Silva forseti Brasilíu tilkynnir að Belem-borg hýsi COP30. Mynd: Palácio do Planalto/Creative Commons Attribution 2.0
Loftslagsbreytingar: Luiz Inácio Lula da Silva forseti Brasilíu tilkynnir að Belem-borg hýsi COP30. Mynd:
Palácio do Planalto/Creative Commons Attribution 2.0

Upplýsingafölsun hefur áhrif á loftslagsaðgerðir

Lula forseti Brasilíu benti á á fundi 20 helstu iðnríkja heims í Rio de Janeiro í nóvember 2024 að „afneitun og upplýsingaóreiða hafa djúpstæð áhrif á loftslagsaðgerðir. Einstök ríki geta ekki leyst þetta vandamál upp á eigin spýtur. Þetta frumkvæði mun safna saman öllum þeim sem vinna að málinu í heiminum til að tryggja aðgang að trúverðugum upplýsingum og hlúa að raunhæfum aðgerðum í aðdraganda COP30.“

Stuðningur við blaðamenn og fræðimenn

Audrey Azoulay forstjóri UNESCO segir að frumkvæðið muni styðja við bakið á þeim sem eru í framlínunni í baráttunni fyrir upplýsinga-heilindum. „Með þessu frumkvæði munum við styðja blaðamenn og frpðimenn, sem kafa til botns í loftslagsmálum og leggja sig stundum í hættu. Jafnframt berjast gegn rangfærslum um loftslagsmál, sem þrífast á samfélagsmiðlum.”

  Þeir sem áhuga hafa geta tekið þátt í átakinu á eftirfarandi sviðum:

  • Rannsókn á upplýsingafölsun og öðrum ógnunum við upplýsinga-heilindi;
  • Úrræði og aðferðir til að efla upplúsinga-heilindi;
  • Samskiptaáætlanir og herferðir;
  • Stuðingur við umhverfis-blaðamennsku;
  • Verndun vísindalegra upplýsinga um loftslagsmál;
  • Gegnsæi í aðfangakeðju auglýsinga;
  • Fjölmðla, upplýsinga og stafrænt læsi um loftslagsmál.

Nánari upplýsingar má finna hér.