COP30. Loftslagsbreytingar. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna viðurkenndi í opnunarræðu sinni á COP30, Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, að ekki tækist að halda hlýnun jarðar innan við 1.5°C gráðu markið.
Úr því sem komið væri, sagði hann að „óhjákvæmilegt” væri að jörðin myndi hafa hlýnað umfram hálfa aðra gráðu á Celsius í byrjun næsta áratugar miðað við upphaf iðnbyltingar.
„Þetta felur í sér siðferðisbrest og banvæna vanrækslu,” sagði António Guterres við upphaf COP30 í Belém í Brasilíu. Hann betni á að jafnvel þótt að svo mikil hlýnin reyndist aðeins tímabundin kynni það að hafa „dramatískar afleiðingar.”

Banvæn vanræksla
„Vistkerfi myndu ekki þola slíkt með óafturkræfanlegum afleiðingum. Milljarðar manna munu búa við ólífvænleg skilyrði og ógnir við frið og öryggi magnast. Hver gráða þýðir meira hungur, uppflosnun fólks og tap, sérstaklega fyrir þá sem bera minnsta ábyrgð á ástandinu,“ sagði Guterres.
Aðalframkvæmdastjórinn sagði að nýjar landsáætlanir aðildarríkja Parísarsamningsins um viðnám við loftslagsbreytingum horfðu til framfara, en væru ekki fullnægjandi.
„Jafnvel þótt þær kæmu að fullu til framkvæmda yrði hlýnun jarðar vel yfir 2° á Celsius.“
2025: 2.-3. hlýjasta árið
Fimmtudaginn 6.nóvember staðfesti Alþjóða veðurfræðistofnunin (WMO) að losun gróðurhúsalofttegunda, sem valda hlýnun jarðar, hafi slegið met. Útlit væri fyrir að 2025 yrði annað eða þriðja hlýjasta ár, sem mælst hefði. Öll tíu heitustu ár frá því mælingar hófust eru á undanförnum áratug.
„Við skulum hafa það á hreinu að 1.5°C markið er rauð lína fyrir mannkynið. Við verðum að halda okkur innan þessa. Og vísindamenn tjá okkur að þetta sé hægt. Ef við höfumst að þegar í stað, á skjótan og umfangsmikinn hátt kann þessi hlýnun að ganga til baka eins hratt og örugglega og hægt er fyrir lok þessarar aldar,“ sagði Guterres.
