COVID-19 gátlisti Hr. Bean

0
733

COVID-19 tilfellum fer fjölgandi í heiminum þótt faraldurinn sé í rénum í Evrópu.

Hin ástsæla persóna Hr. Bean sem leikarinn Rowan Atkinson skapaði hefur nú lagt sín lóð á vogarskálarnar í baráttunni við heimsfaraldurinn með því að gefa út myndbandið „COVID-19 gátlisti Hr. Bean.”

Þar er almenningur minntur enn og aftur góðlátlega á að þvo sér um hendur, gæta hæfilegrar fjarlægðar frá náunganum og vera nægætnir við nágranna sína.

Myndbandið sýnir Mr.Bean bisa við að koma slíkum skilaboðum til skila – að hætti hússins.

Dr Tedros Adhanom Ghebreyesus forstjóri Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar segir að við þurfum á öllu að halda til að koma upplýsingum um COVID-19 til skila og til fólks í öllum heimshornum.

„Þess vegna er ég þakklátur teyminu á bakvið Mr. Bean að hjálpa til við að koma þessum mikilvægu boðum til skila.”

Sjá nánar hér: www.who.int/COVID-19