COVID-19: Sameinuð sigrum við

0
841
Covid 19
Guterres leggur áherslu á alþjóðlega samvinnu til að bregðast við alheimsfaraldrinum.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ritar grein sem birst hefur í fjölmiðlum um víða veröld, þar á meðal á visir.is.   

COVID-19: Sameinuð sigrum við eftir António Guterres

Hvarvetna er mikið uppnám vegna kórónaveirunnar – COVID-19. Og ég veit að margir eru kvíðnir, áhyggjufullir og ráðvilltir. Það er alveg eðlilegt.

Við stöndum frammi fyrir heilbrigðisvá sem er ólík öllu sem við höfum kynnst á ævinni.

Á sama tíma breiðist veiran út, hættan vex og það reynir á heilbrigðiskerfi okkar, hagkerfi og daglegt líf okkar.

Þeir sem eru berskjaldaðir, sérstaklega eldra fólk og þeir  sem glíma við vanheilsu af öðru tagi, þeir sem hafa ekki aðgang að traustri heilsugæslu og hinir fátæku og þeir sem eru á jaðri samfélagsins, verða harðast fyrir barðinu á veirunni.

Félagsleg og efnahagsleg áhrif útbreiðslu faraldursins og samdráttar í efnahagslífinu munu snerta okkur næstu mánuði.

Við munum ná okkur

En útbreiðsla veirunnar mun ná hámarki. Hagkerfi okkar munu ná sér.

Þangað til verðum við að leggjast saman á árarnar til þess að hægja á útbreiðslu veirunnar og gæta hvors annars.

Þetta er tími gætni, ekki óðagots. Tökum vísindi fram yfir fordóma, lítum á staðreyndir og forðumst óttann.

Jafnvel þóttt ástandið hafi verið flokkað sem alheimsfaraldur, getum við haft stjórn á honum. Við getum hægt á útbreiðslu, hindrað smit og bjargað mannslífum. En við verðum að grípa til fordæmalausra aðgerða hvort heldur sem persónulega, innanlands eða á alþjóðlegum vettvangi.

COVID-19 er sameiginlegur óvinur okkar. Við verðum að lýsa yfir stríði á hendur veirunni. Það þýðir að ríki verða að sýna ábyrgð og efla viðnám sitt.

Hvernig? Með því að setja upp hindranir, með þvi að virkja og auka almannavarnakerfi, með því að auka umtalsvert greiningargetu og umönnun sjúklinga, með því að undirbúa sjúkrahús, og tryggja að þau hafi rými, birgðir og nauðsynlegt starfsfólk, og með því að þróa læknisfræðileg inngrip sem geta bjargað mannslífum.

Við berum líka öll ábyrgð á því að fara eftir ráðum lækna og stíga þau skref sem heilbrigðisyfirvöld leggja til.

Efnahagslífið

Auk þess að vera lýðheilsuvá er veiran að smita alþjóðlegan efnahag.

Óvissa hefur leikið fjármálamarkaði hart. Birgðadreifingarkerfi heimsins hefur orðið fyrir skakkaföllum. Fjárfestingar og neysla hafa minnkað og skapað raunverulega hættu á samdrætti um allan heim.

Hagfræðingar Sameinuðu þjóðanna telja að veiran geti kostað hagkerfi heimsins að minnsta kosti eina billjón Bandaríkjadala á þessu ári og kannski meira.

Ekkert ríki getur unnið sigur upp á eigin spýtur. Samvinna ríkisstjórna er mikilvægari en nokkru sinni áður til að blása lífi í efnahaginn, auka opinbera fjárfestingu, glæða viðskipti. Tryggja ber markvissan stuðning við fólk og samfélög sem harðast verða úti af völdum veirunnar eða efnahagslegs umróts af hennar völdum – sérstaklega konur sem of axla hlutfallslega meiri byrði af umönnunarstarfi.

Heimsfaraldur varpar ljósi á innbyrðistengsl fjölskyldu mannkyns. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að hindra frekari útbreiðslu COVID-19.

Öll í sama báti

Sameinuðu þjóðirnar, þar á meðal Alþjóða heilbrigðismálastofnunin, vinna að þessu verkefni af fullum krafti.

Við vinum allan sólarhringinn með ríkisstjórnum, veitum alþjóðlega leiðsögn, og hjálpum heiminum að takast á við þessa vá.

Við erum öll í þessu saman og við munu sigrast á þessu saman.

-António Guterres er aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna