Dagur Sameinuðu þjóðanna: Samstaða í stað ótta

Dagur Sameinuðu þjóðanna 24.október.
Dagur Sameinuðu þjóðanna 24.október.

Dagur Sameinuðu þjóðanna. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að nú sé brýnna en nokkru sinni fyrr að standa staðfastlega vörð um stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalög.

Í ávarpi sínu á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október segir aðalframkvæmdastjórinn að á þessum degi fögnum við ekki aðeins stofnun, heldur hugsjón.

„Framtíð mannkyns veltur á getu okkar til að vinna saman að friði, þróun og mannréttindum. Í 81 ár hafa Sameinuðu þjóðirnar blásið lífi í þá hugsjón.“

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ræðir við fjölmiðla í tengslum við fund sinn með fulltrúum leiðtogaráðs Evrópusambandsins í Brussel. UN Photo/Marian Blondeel
António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ræðir við fjölmiðla í tengslum við fund sinn með fulltrúum leiðtogaráðs Evrópusambandsins í Brussel. UN Photo/Marian Blondeel

Guterres benti á hlutverk Sameinuðu þjóðanna við að leysa deilur – með erindrekstri og lögum, ekki vopnum – við að uppræta fátækt og hungur, efla mannréttindi og veita fólki sem býr við stríð, hamfarir og vergang lífsnauðsynlega aðstoð.

Enn fremur sagði hann að stofnunin hefði verið ómissandi hluti af gangverki heimsins, allt frá samgöngum, viðskiptum og tækni til þess að standa vörð um heilsu fólks og jarðar. Jafnframt í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna og aukinna tækifæri kvenna og stúlkna, auk þess að veita öllum ríkjum jafna rödd á alþjóðavettvangi.

Meira þörf en nokkru sinni fyrr

„Og Sameinuðu þjóðanna er þörf nú meira en nokkru sinni fyrr,“ sagði Guterres á tímum þegar heimurinn er skekinn af átökum, laskaður af loftslagsvánni og markaður af vaxandi ójöfnuði. „Og umbreyttur af tækni sem þróast hraðar en geta okkar til að stýra henni.“

António Guterres aðalframkvæmdastjóri sækir dag Sameinuðu þjóðanna á heimssýningunni Expo 2025 í Osaka í Japan. UN Photo/Daisuke Tanaka
António Guterres aðalframkvæmdastjóri sækir dag Sameinuðu þjóðanna á heimssýningunni Expo 2025 í Osaka í Japan. UN Photo/Daisuke Tanaka

„Nú er tími til að árétta þau gildi sem lágu til grundvallar stofnun Sameinuðu þjóðanna: Samræður fremur en sundrung. Samvinna fremur en átök. Samstaða fremur en ótti. Á degi Sameinuðu þjóðanna hvet ég öll ríki til að endurnýja skuldbindingu sína við þessi sameiginlegu gildi og þær skyldur sem á þeim hvíla. Nú meira en nokkru sinni fyrr skulum við standa staðfastlega vörð um stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalög. Og vinnum að því að efla Sameinuðu þjóðirnar svo þær geti sem best þjónað fólki og tekist á við áskoranir samtímans,“ sagði Guterres í ávarpi sínu á degi Sameinuðu þjóðanna.

Dagur Sameinuðu þjóðanna, 24. október, markar afmæli gildistöku stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1945. Með fullgildingu þessa stofnskjals af hálfu meirihluta þeirra ríkja sem undirrituðu það, þar á meðal fastafulltrúanna fimm í öryggisráðinu, urðu Sameinuðu þjóðirnar formlega til.