Danmörk, Grikkland, Pakistan, Panama og Sómalía tóku sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna nú um áramótin. Þau sitja þar næstu tvö árinu 2025-2026.
Þetta er í fimmta skipti sem Danmörk á sæti í Öryggisráðinu. Norðurlönd hafa sameinast um framboð til Öryggisráðsins annað hvert kjörtímabil. Síðast sat Noregur í ráðinu 2021-2022.
Í kosningabaráttu sinni lagði Danmörku áherslu á að standa vörð um alþjóðalög, þar á meðal alþjóðleg mannúðarlög í Öryggisráðinu. Þá myndi ríkið leitast við að stuðla að skilvirkara og ábyrgari Öryggisráði.
Bæta krísustjórnun
Auk þessa ætlar Danmörk að setja þrjú atriði í forgang:
- Að aðlaga krísustjórnun Öryggisráðsins og forvarnir gegn átökum, að nýjum tegundum ófriðar.
- Að takast á við afleiðingar loftslagsbreytingar á friðar- og öryggismál.
- Að efla málaflokkinn Konur, friður og öryggi í Öryggisráðinu.
Alls eiga tíu ríki aðild að Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, kjörin af Allsherjarþinginu. Auk þess eiga fimm ríki fast sæti en þau eru; Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland.
Danmörk, Grikkland, Pakistan, Panama og Sómalía voru kjörin á Allsherjarþinginu og taka við af Ekvador, Japan, Mósambík, Möltu og Japan.
