A-Ö Efnisyfirlit

De Croo skipaður forstjóri UNDP

De Croo var forsætisráðherra Belgíu frá 2000 og til ársbyrjunar 2025. António Guterres skipaði hann í embættið.
De Croo var forsætisráðherra Belgíu frá 2000 og til ársbyrjunar 2025. António Guterres skipaði hann í embættið. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe

Alexander De Croo fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu hefur verið skipaður forstjóri UNDP, Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna.

De Croo var forsætisráðherra Belgíu frá 2020 til 2025. Áður var hann vara-forsætisráðherra og gegndi ýmsum öðrum ráðherraembættum. Hann tekur við starfinu 2.desember og er skipaður til fjögurra ára.

De Croo tekur við af hinum þýsk-brasilíska Achim Steiner sem verið hefur forstjóri frá 2017. António Guterres skipaði De Croo í embættið.