A-Ö Efnisyfirlit

Ebólafaraldur: nýtt afbrigði án bóluefnis eða meðferðar

Öryggisbúnaður prófaður til að forðasdt ebólusmit WHO-Eugene-Kabambi
Öryggisbúnaður prófaður til að forðasdt ebólusmit WHO-Eugene-Kabambi

Ebóla er langt frá því að vera nýtt fyrirbæri í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DRC). Hvers vegna hefur þá verið lýst yfir  alþjóðlegu neyðarástandi í heilbrigðismálum út af  nýjasta faraldrinum?

Veiruafbrigðið sem um ræðir, kallað „Bundibugyo“, er óvenjulegt að því leyti að engin meðferð eða bóluefni er til við því, ólíkt „Zaire ebolavirus“ afbrigðinu, sem er það skæðasta og olli flestum fyrri faröldrum.

Þótt að minnsta kosti 80 dauðsföll hafi verið skráð í Ituri-héraði þann 16. maí, hefur einnig verið tilkynnt um grun um faraldur í nágrannahéraðinu Norður-Kivu, svæði sem þegar hefur orðið fyrir barðinu á fyrri heilbrigðis- og öryggiskreppum.

Alþjóðlegar áhyggjur jukust eftir að tvö tilfelli voru staðfest í Kampala, höfuðborg Úganda, hjá ferðamönnum sem voru að snúa aftur frá DR.

Ebóla: heilbrigðisstarfsmaður sinnir barni í fyrri ebóliufaraldri í Kongó.
Ebóla: heilbrigðisstarfsmaður sinnir barni í fyrri ebóliufaraldri í Kongó. Mynd: UNICEF/Vincent Tremeau

Smit milli manna

Ebóla smitast í menn úr sýktum dýrum. Smit milli manna verður með líkamsvessum, svo sem svita, blóði, saur o.s.frv. Veiran er mjög smitandi. „Ebóla smitast frá móður til barns, frá eiginmanni til eiginkonu, frá sjúklingi til umönnunaraðila, úr líki fórnarlambs til syrgjandi ættingja,“ útskýra sérfræðingar WHO.

Helstu einkennin eru hiti, uppköst, blæðingar, niðurgangur og kviðverkir. Meðaldánartíðni er um 50%. Þessi tíðni hefur verið breytileg frá 25% til 90% í fyrri faröldrum.

Faraldrar ebóluveirunnar, blæðingasóttar sem herjar á Afríku – rétt eins og Marburg-veiran sem tilheyrir sömu fjölskyldu – eru orðnir langvinnir í DRC. Þetta er sá 17. síðan ebóluveiran var uppgötvuð árið 1976.

Endurteknir ebólafaraldrar í gegnum árin

Nýjustu bylgjur ebóluveirunnar í DRC náðust niður á þremur til fjórum mánuðum. Sú síðasta lauk í desember 2025 í Bulape, dreifbýlu svæði í Kasaï, eftir fjögurra mánaða skjót og samræmd viðbrögð með WHO.

Sá langvarandi í DRC, í Norður-Kivu og Ituri, stóð í næstum tvö ár á milli 2018 og 2020 og olli 2.299 dauðsföllum. Honum var loks náð niður eftir víðtæka bólusetningarherferð sem náði til meira en 300.000 manns.

Ebóla er enn mjög banvæn og flókið að hefta útbreiðslu hennar þegar viðbrögð eru ekki nógu hröð. Milli 2014 og 2016 í Vestur-Afríku stóð faraldurinn einnig í tvö ár og olli fleiri tilfellum (28.600) og dauðsföllum (11.300) en allir hinir samanlagt. Hann breiddist út til nokkurra landa, byrjaði í Gíneu og náði til nágrannalandanna Síerra Leóne og Líberíu.

„Mjög alvarlegur sjúkdómur, en við vitum hvernig á að ná stjórn á honum“

Í yfirlýsingu sinni leggur WHO áherslu á að atburðurinn feli í sér mikla hættu fyrir lýðheilsu á alþjóðavísu, jafnvel þótt hann uppfylli ekki skilyrði fyrir heimsfaraldri.

Stofnun Sameinuðu þjóðanna bendir á nokkra íþyngjandi þætti: viðvarandi óöryggi í austurhluta DRC mannúðarkreppuna, þéttbýli á sumum sýktum svæðum og tilvist víðtæks nets óformlegra heilsugæslustöðva sem flækir eftirlit með sjúklingum.

Að lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi í heilbrigðismálum „hjálpar til við að vekja athygli alþjóðasamfélagsins, virkja fjármagn hraðar og tryggja sem besta alþjóðlega samvinnu. En þetta þýðir ekki að við ættum að örvænta. (…) Óttinn sjálfur er faraldur,“ útskýrði prófessor Mohamedi Janabi, svæðisstjóri WHO fyrir Afríku.

„Ebóla er mjög alvarlegur sjúkdómur, en við vitum hvernig á að ná stjórn á honum,“ bætti hann við.

Annað sjaldgæft ebóluafbrigði án bóluefnis eða meðferðar heft á fjórum mánuðum í Úganda

Reynslan, hraði og samhæfing viðbragða eru áfram lykilatriði – í samhengi þar sem alþjóðleg aðstoð og fjárveitingar WHO hafa því miður minnkað verulega. Þann 11. janúar 2023 var ebólafaraldrinum í Úganda formlega lýst yfir lokið, eftir fjögurra mánaða baráttu við að hefta útbreiðslu sjaldgæfs, mjög smitandi Súdan-afbrigðis, sem einnig var án bóluefnis eða meðferðar. Í heildina var dánartíðnin 47%.