Ebóla í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó (LLK), drepur einn einstakling á hálftíma fresti. Faraldurinn er sá sem hraðast hefur vaxið, svo vitað sé og stefnir í að verða sá mannskæðasti.
„Ebóla er að sigra í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó,” sagði Tom Fletcher, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. „Við megum ekki láta veiruna ná forskoti á viðbrögð okkar.“
Aukin aðstoð
Samhliða að skýra frá hinni skelfilegu dánartíðni tilkynnti Fletcher á föstudag að hann hefði úthlutað 30,5 milljónum dala til viðbótar úr Neyðarsjóði Sameinuðu þjóðanna (CERF). Þettaa er til viðbótar 24 milljónir dala sem áður höfðu verið veittar til Kóngó og nágrannaríkja þess til að berjast gegn faraldrinum.
Mannúðarskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (OCHA) sendi nýlega 20 starfsmenn til viðbótar til upptaka faraldursins, en Fletcher sagði að fleiri gætu verið nauðsynlegir til að hægja á útbreiðslunni.
Yfirvöld í Kongó lýstu yfir ebólafaraldri af Bundibugyo-stofni þann 15. maí og hefur hann nú kostað 2.184 mannslíf – nærri 47 prósent þeirra sem hafa smitast. Ebólutilfelli hafa verið skráð í sex af 26 héruðum LLK og Úganda hefur tilkynnt um 20 tilfelli.
„Þetta er ákall um aðgerðir,” sagði Fletcher. „Við þurfum hraða, umfang og samstöðu áður en þessi veira nær enn meira forskoti á okkur.”
WFP eykur matvælaaðstoð
Almennir borgarar í Norður-Kivu og Suður-Kivu héruðunum glíma samtímis við ebólu og yfirstandandi átök milli kongóska hersins og M23-herflokksins sem er studdur af Rúanda.
Ituri-hérað er enn miðpunktur faraldursins; af meira en 4 660 tilfellum alls hafa yfir 3 400 verið skráð í Ituri. Í austurhluta Kongó eru 2,6 milljónir manna alvarlega vannærðar og meira en helmingur þeirra er í Ituri. Frá lokum maí hefur WFP útvegað meira en 260 000 heitar máltíðir á meðferðar- og einangrunarstöðvum í Ituri, Norður-Kivu og Suður-Kivu héruðunum.
Eftir fund Fastanefndar stofnana Sameinuðu þjóðanna á föstudag sagði Fletcher að stærstu mannúðarsamtök heims hefðu samþykkt að auka alþjóðleg viðbrögð við ebólu.
Meiri stuðning þarf
Til að vernda mannslíf á svæðinu sagði Fletcher að Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra sem bregðast við ebólu yrðu að tvöfalda fjölda teyma sem tryggja öruggar og virðulegar útfarir, þrefalda meðferðargetu, bæta smitrakningu og senda fleiri reynda stjórnendur á vettvang.
Þeir þurfa einnig að halda áfram að veita vatn, hreinlætis- og heilbrigðisaðstoð til þeirra sem verða fyrir áhrifum bæði af faraldrinum og áralöngum átökum milli margra vopnaðra hópa og þjóðarhersins sem flækir baráttuna gegn ebólu.
Aðstoð vegna fæðuóöryggis er aðeins 25 prósent fjármögnuð, sem undirstrikar þörfina fyrir viðbótarfjármagn til lífsnauðsynlegrar matvælaaðstoðar.
„Meira en 2.000 manns hafa þegar látist. Margir fleiri eru í hættu. Heimurinn þarf að vakna og láta til sín taka,” sagði Fletcher.
Taka skal fram að tvö Afríkuríki kenna sig við Kongó-fjótið. Annars vegar er Lýðveldið Kongó, er stundum kallaðKongó-Brazzaville í höfuðið á höfuðborginni. Það var áður frönsk nýlenda. Því ber ekki að rugla saman við stærra nágrannaríkið í austri, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó (Kongó-Kinshasa). Það er mun stærra, var áður belgísk nýlenda og kallað Kongó í greininni til styttingar.
