Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra lagði út frá eigin reynslu í ræðu á fundi aðildarríkja samningsins Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í New York í gær.
„Ég heiti Inga Sæland. Ég er lögblind. Ég hef minna en 10% sjón og hef aldrei ekið bíl eða séð haustlitina. En ég er félags- og húsnæðismálaráðherra – fyrsta manneskjan með fötlun sem gegnir ráðherraembætti á Íslandi.”
Þannig hóf ráðherrann ræðu sína. Hún skýrði síðan frá því hvernig hún hefði veikst barn að aldri og misst nær alla sjón. Hún hafi alist upp í sjávarplássi og sætt einelti. Þótt hana hafi dreymt um menntun, hafi hún ekki getað lesið kennslubækur og flosnað upp úr skóla.
Þrátt fyrir efasemdir um að slíkt ætti fyrir henni að liggja, hefði hún eignast mann og fjögur börn.
Fátækin var miskunnarlaus
„Síðan breyttist allt. Maðurinn minn lenti í slysi og gat ekki unnið lengur,” sagði Inga. „Fátæktin var miskunnarlaus. Sonur minn var efnilegur fótboltamaður en við höfðum ekki efni á skóm. Hann spilaði í gömlum skóm sem voru svo þröngir að táneglurnar duttu af honum. Litlu stelpuna mína dreymdi um að læra á fiðlu en það var utan seilingar. Elsta son minn langaði til að halda áfram námi en við áttum ekki fyrir strætókorti til að hann kæmist í skólann. Að horfa á drauma þeirra fjara út særði mig djúpt. Ég kenndi sjálfri mér um.”
Þrátt fyrir lögblinduna sá hún óréttlætið skýrt
Hún sagði að síðar hefði hún loks fengið stuðning vegna fötlunar sinnar.
„Áratugum saman hafði ég upplifað að ég ætti ekki stað í samfélaginu en loksins var hindrununum rutt úr vegi. Ég fékk akstursþjónustu fyrir fatlaða og aðstoð við að sjá orðin á blaðinu. Þökk sé þessu lauk ég laganámi þegar ég var 56 ára! Á þeim tímapunkti spurði ég sjálfa mig: „Hvernig get ég hjálpað?“”
Hún sagði að þrátt þrátt fyrir lögblinduna hefði hún séð óréttlætið skýrt, stofnað stjórnmálafokk til að berjast gegn fátækt og bæta líf fatlaðs fólks. Loks hefði hún settst og þing og í ráðherrastól.
„Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á Íslandi hefur djúpa persónulega þýðingu fyrir mig. Ég setti því í forgang að leggja fram frumvarp á Alþingi vegna þessa nú í mars og mun fylgja því fast eftir.”
Draumar mínir rættust þökk sé stuðningi
Inga sagði að reynslan hafi kennt henni að þegar viðhorf samfélagsins gagnvart fötlun breytist sé hægt að breyta lífi fólks og opna nýjar dyr.
„Draumar mínir rættust þökk sé stuðningnum sem ég fékk – og réttindunum sem ég fékk loksins að njóta. Réttindunum sem þessi sáttmáli – sem er mér svo kær – setur svo skýrt fram,” sagði Inga Sæland í lok ræðu sinnar.
„Ég þakka Sameinuðu þjóðunum og ykkur öllum innilega fyrir elju ykkar og skuldbindingu.
Og hér er ég nú. Tilbúin að brjóta niður múrana sem enn hamla því að fatlað fólk fái virkjað allan sinn mannauð.
Stolt. Fötluð. Og óendanlega þakklát.
Ekkert um okkur án okkar.”
Sjá ræðu Ingu Sæland í heild hér.
Og greinina á ensku hér.
