4.desember 2015. Eiffel-turninn er eitt helsta tákn Parísar og því ekki að undra að hann hafi verið miðpunktur ýmiss konar viðburða í tengslum við Loftslagsráðstefnuna COP21.
Fyrri viku COP21 var gestum og gangandi gefinn kostur á að taka þátt í átakinu 1 hjarta 1 tré, en gegn 10 evru eða hærra gjaldi, var mynd af tré varpað á Eiffel turninn og féð síðan notað til gróðursetningar.

Það er Yann Toma, prófessor í listum við Sorbonne-háskóla sem stendur fyrir þessu verki en stefnt er að því að slá met um fjölda fólks sem tekið hefur þátt í gerð eins listaverks. Upphaflega átti almenningur að knýja ljósin með því að hjóla á hjólum sem koma átti fyrir viið turninn, en breyta varð fyrirætlununum vegna hryðjuverkanna í París 13. Nóvember.

