Enn eitt met hefur verið slegið um fjölda landflótta fólks í heiminum

0
598
75 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna
Flóttamenn frá Venesúela njóta aðstoðar Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR).

 Þrátt fyrir nokkur merki um árangur hefur fleira fólki verið stökkt á flótta og hraðar en nokkru sinni fyrr. Úrræðum hefur ekki fjölgað að sama skapi.

 UNHCR, Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna, segir að fjöldi fólks sem er neyddur til að flýja heimili sín hafi aukist á hverju ári undanfarinn áratug og hefur ekki verið meiri síðan mælingar hófust.

Rohingja-flóttamenn
Barn ber vatn í Cox´s Bazar flóttamannabúðunum í Bangladesh Mynd:. © UNICEF/Patrick Brown

Þessari þróun er aðeins hægt að snúa við með nýrri samstilltri friðarviðleitni.  Í árslok 2021 voru 89,3 milljónir á flótta vegna stríðs, ofbeldis, ofsókna og mannréttindabrota. Þetta er 8% aukning frá árinu áður og vel rúmlega tvöföldun frá því fyrir 10 árum, samkvæmt árlegri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna, Alþjóðlegir straumar.

Síðan þá hefur bæst við innrás Rússa í Úkraínu, sem olli skjótustu og umfangsmestu kreppu vegna nauðungarflótta frá síðari heimsstyrjöld. Þessu til viðbótar má nefna önnur neyðaratvik, allt frá Afríku til Afganistans og víðar, sem valda því að samtals er fjöldi flóttamanna nú kominn yfir 100 milljónir.

Stöðug fjölgun í áratug

„Fjöldinn hefur aukist á hverju ári síðasta áratuginn,“ sagði Filippo Grandi, Flóttamannastjóri Sameinuðu þjóðanna. „Annað hvort mun alþjóðasamfélagið grípa til aðgerða í sameiningu til að takast á við þennan mannlega harmleik, leysa átök og finna varanlegar lausnir, eða þessi hræðileg þróun mun halda áfram.”

Síðasta ár var eftirtektarvert fyrir fjölda átaka sem stigmögnuðust og ný sem blossuðu upp; 23 lönd, með samanlagt 850 milljónir íbúa, stóðu frammi fyrir miðlungs- eða miklum átökum, að mati Alþjóðabankans.

UNHCR Ísland
Aðstoð til flóttamanna

Á sama tíma hafa matarskortur, verðbólga og loftslagskreppan magnað erfiðleika fólks og aukið þörf á mannúðaraðstoð, á sama tíma og fjármögnunarhorfur víða, virðast ekki bjartar. Fjöldi flóttamanna jókst árið 2021 um 27,1 milljón. Flóttamönnum fjölgaði meðal annars í Úganda, Tsjad og Súdan. Tekið var enn og aftur á móti flestum flóttamönnum í nágrannalöndum hamfarasvæða, sem búa yfir fáum úrræðum. Fjöldi hælisleitenda náði 4,6 milljónum, sem er 11 prósent aukning.

Rúmar 50 milljónir á flótta innanlands

Á síðasta ári jókst fjöldi fólks á flótta undan átökum í eigin landi fimmtánda árið í röð og er nú 53,2 milljónir. Aukningin var knúin áfram af vaxandi ofbeldi eða átökum á ýmsum stöðum, til dæmis í Mjanmar. Átökin í Tigray í Eþíópíu og öðrum svæðum hafa ýtt undir flótta milljóna manna innan landsins. Uppreisnarástand á Sahel-svæðinu olli nýjum landflótta, einkum í Búrkína Fasó og Tsjad. Hraði og umfang fólksflótta er enn meiri en tiltækar lausnir fyrir þá sem eru á flótta. Á meðal úrræða má nefna að flóttamenn snúi aftur heim, séu sendir til annara landa eða aðlagist mótttökuríkinu

Þrátt fyrir þetta má finna vonarglætu í nýju skýrslunni.  Fjöldi þeirra flóttamanna og fólks sem hafði verið á flótta innanlands sem snúið hafði heim jókst árið 2021 og er nú svipaður og var fyrir COVID-19. Þessi fjölgun nam 71 prósenti en heildarfjöldinn var þó ekki mikill.

Filippo Grandi, UNHCR

„Þó að við verðum vitni að skelfilegum nýjum flóttamannavanda og vandi sem fyrir var hafi aukist og vandinn óleystur, eru einnig dæmi um að lönd og samfélög hafi unnið saman að því að leita lausna fyrir flóttafólk,“ bætti Grandi við. „Þetta er að gerast á ýmsum stöðum – til dæmis má nefna svæðisbundið samstarf um að gera flóttamönnum frá Fílabeinsströndinni klefit að snúa aftur heim. Þetta getur verið fyrirmynd fyrir aðra og helst á umfangsmeiri hátt.“

Og þó áætlaður fjöldi ríkisfangslausra hafi aukist lítillega árið 2021, öðluðust um 81.200 ríkisborgararétt eða fengu hann staðfestan – sem er mesta fækkun ríkisfangsleysis frá upphafi IBelong herferðar Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna árið 2014.

 Skýrsla UNHCR 2021 um Alþjóðlega strauma– lykiltölur:

  • Í maí 2022 voru meira en 100 milljónir manna á flótta um allan heim af völdum ofsókna, átaka, ofbeldis, mannréttindabrota eða atburða sem trufluðu samfélagsreglu á alvarlegan hátt.
  • Í árslok 2021 var talan komin í 89,3 milljónir, þar af:
    • 1 milljónir flóttamanna
      • 3 milljónir flóttamanna undir umboði Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna
      • 8 milljónir palestínskra flóttamanna undir umboði UNRWA
      • 2 milljónir á flótta innanlands § 4.6 milljónir hælisleitenda
      • 4 milljónir flóttamanna frá Venesúela á flótta erlendis
      • Á meðal flóttamanna og landflótta Venesúelabúa árið 2021:
    • Lönd með lágar og meðalháar tekjur tóku á móti 83 prósent o Minnst þróuðu löndin veittu hæli fyrir 27 prósent af heildarfjöldanum.
    • 72 prósent bjuggu í nágrannalöndunum sínum.
    • Tyrkland tók á móti tæplega 3,8 milljónum flóttamanna og er stærsta gistiríki flóttamanna í heiminum. Næst á eftir kemur Úganda (1,5 milljónir), Pakistan (1,5 milljónir) og Þýskaland (1,3 milljónir). Kólumbía tók á móti 1,8 milljónum landflótta Venesúelabúa.
    • Líbanon hýsti flesta flóttamenn á mann (1 af hverjum 8), næst á eftir Jórdaníu (1 af hverjum 14) og Tyrkland(1 af hverjum 23). Miðað við höfðatölu tók eyjan Aruba á móti flestum íbúum Venesúela sem voru á flótta erlendis (1 af hverjum 6), svo Curaçao (1 af hverjum 10).
    • Meira en tveir þriðju flóttamanna(69 prósent) komu frá aðeins fimm löndum: Sýrland (6,8 milljónir), Venesúela (4,6 milljónir), Afganistan (2,7 milljónir),[6] SuðurSúdan (2,4 milljónir) og Mjanmar (1,2 milljónir) •
    • Árið 2021 voru á heimsvísu 6,1 milljónir flóttamanna, hælisleitenda og farandsfólks frá Venesúela (tilkynnt í gegnum Samhæfingarvettvang Flóttamanna og Farandsfólks frá Venesúela). •
    • 4 nýjar umsóknir um hæli voru lagðar fram. Flestar einstaklingsumsóknir voru í Bandaríkin í Bandaríkjunum (188.900), næst á eftir komu Þýskaland (148.200), Mexíkó (132.700), Kosta Ríka (108.500) og Frakkland (90.200). •
    • Lausnir:
      • 7 milljónir flóttafólks sneru aftur til svæða sinna eða upprunalanda árið 2021, þar af 5,3 milljónir manna á flótta innanlands og 429.300 almennir flóttamenn.

 Skýrsla Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna, Alþjóðlegir Straumar, og margmiðlunarefni er fáanlegt á fjölmiðlasíðu UNCHR hér og  hér.