Enn ekkert samkomulag um plastmengun

Viðræðum ríkja um lagalega bindandi alþjóðasáttmála til að stemma stigu við plastmengun lauk í Busan í Suður-Kóreu í dag, 2.desember, án samkomulags. Viðræður verða teknar upp að nýju á næsta ári á grundvelli samantektar formanns á árangri vikulangra viðræðna.

Rúmlega 3300 fulltrúar 170 ríkja og áheyrnarfulltrúa meir en 440 samtaka hafa ráðið ráðum sínum í Busan frá 25.nóvember. Þetta er fimmta hrina viðræða um alþjóðasáttmála um plastmengun, sem nær meðal annars til hafsins.

Inger Andersen forstjóri UNEP. Mynd: © UNEP / Duncan Moore
Inger Andersen forstjóri UNEP. Mynd: © UNEP / Duncan Moore

Inger Andersen forstjóri UNEP, Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, sagði að góður árangur hefði náðst á fundinum.

Skýr vilji

„Það leikur enginn vafi á skýrum vilja heimsins til að binda enda á plastmengun,“ sagði Andersen. „Hér í Busan hafa viðræður þokast nær samkomulagi um lagalega bindandi sáttmála, sem myndi vernda heilsu okkar, umhverfi okkar og framtíð okkar frá skaðlegri plastmengun.“

UNEP/Bingying
Fulltrúi Sádi Arabíu á fundinum. Mynd: UNEP/Bingying

Á fimmta umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna í mars 2022 náðist sögulegt samkomulag um að gerður skyldi lagalega bindandi sáttmáli. Samkæmt álykuninni, sem var samþykkt, ber að beita heildstæðri nálgun, sem nái til alls líftíma plastsins frá framleiðslu, hönnunar til urðunar.

Fréttir