A-Ö Efnisyfirlit

Epstein-skjölin: hugsanlega glæpir gegn mannkyni

Enginn er æðri lögunum, segja mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna.
Enginn er æðri lögunum, segja mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna. Mynd: Unsplash/Tingey Injury Law Firm

Óháðir mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna telja að Epstein-skjölin svokölluðu kunni að hafa leitt í ljós „óþægilegar og trúverðugar sannanir“ fyrir alþjóðlegri glæpastarfsemi sem felur í sér kerfisbundna kynferðislega misnotkun, mansal og misnotkun kvenna og stúlkna.

Í yfirlýsingu hafa óháðu sérfræðingarnir við því að meint athæfi sem skjalfest er í skjölunum gætu talist til alvarlegustu glæpa samkvæmt alþjóðalögum. Tilkynnt háttsemi gæti talist kynferðisleg þrælkun, ofbeldi vegna æxlunar, nauðungarhvarfa, pyntinga, ómannúðlegrar og vanvirðandi meðferðar og kvennamorðs, að sögn sérfræðinganna.

Sérfræðingarnir starfa sem einstaklingar samkvæmt umboði frá Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og eru ekki starfsmenn Sameinuðu þjóðanna.

„Svo alvarlegt er umfang, kerfisbundið eðli og fjölþjóðleg útbreiðsla þessara grimmdarverka gegn konum og stúlkum að fjöldi þeirra gæti með sanngjörnum hætti náð lagalegum þröskuldi glæpa gegn mannkyni,“ sögðu þeir.

Flest fórnarlömb mansals í heiminum eru konur.
Flest fórnarlömb mansals í heiminum eru konur. Mynd: IOM.

Þröskuldur glæpa gegn mannkyni

Samkvæmt alþjóðlegum refsilögum eru glæpir gegn mannkyni framdir þegar athafnir eins og nauðgun, kynlífsþrælkun, nauðungarvændi, mansal, ofsóknir, pyntingar eða morð eru framin sem hluti af útbreiddri eða kerfisbundinni árás gegn almennum borgurum, með vitneskju um árásina.

Sérfræðingarnir sögðu að mynstrin sem greint er frá í skjölunum gætu náð þessu umfangi og verði að kæra fyrir öllum lögbærum innlendum og alþjóðlegum dómstólum. Upplýsingagjöfin á rætur að rekja til laga um gagnsæi Epstein-skjalanna, sem undirrituð voru 19. nóvember 2025. Þann 30. janúar 2026 birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna stóran hluta efnis sem samanstóð af meira en þremur milljónum blaðsíðna, 2.000 myndböndum og 180.000 myndum.

 Jeffrey Epstein, sem framdi sjálfsvíg 66 ára að aldri í ágúst 2019 í fangaklefa í New York, stóð frammi fyrir sakamálarannsóknum í Bandaríkjunum vegna ásakana um að hann hefði rekið kerfi til að ráða og misnota kynferðislega ungar stúlkur – margar þeirra ólögráða og í viðkvæmum aðstæðum.

 Sérfræðingarnir fögnuðu hugrekki og seiglu fórnarlambanna við að sækja ábyrgð með miklum persónulegum kostnaði og lögðu áherslu á að samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum eru ríki skyldug til að koma í veg fyrir, rannsaka og refsa ofbeldi gegn konum og stúlkum, þar á meðal verknaði sem einkaaðilar framdi.

 „Þessir glæpir voru framdir í krafti yfirburða, kynþáttafordóma, spillingar, mikillar kvenfyrirlitningar og vöruvæðingar og afmennskunar kvenna og stúlkna frá mismunandi heimshlutum,“ sagði sérfræðingahópurinn.

 Gagnrýna verklag

Sérfræðingarnir beindu einig kastljósi að „alvarlegum mistökum“ í birtingarferlinu, þar á meðal afhjúpun viðkvæmra upplýsinga um fórnarlömb. Þeir lögðu áherslu á brýna þörf fyrir fórnarlambsmiðaðar staðlaðar verklagsreglur um upplýsingagjöf og úrvinnslu, svo að ekkert fórnarlamb verði fyrir frekari skaða.

„Að vanrækja að vernda friðhelgi einkalífs þeirra setur fórnalömb í hættu á hefndum og fordómum,“ vöruðu sérfræðingarnir við.

Enginn er of ríkur eða of valdamikill til að vera æðri lögunum

Þeir undirstrikuðu enn fremur að „uppsagnir einstaklinga sem eru sakaðir um brot koma ekki í stað  refsiábyrgðar“. Þeir fögnuðu ákvörðunum sumra stjórnvalda um að rannsaka núverandi og fyrrverandi embættismenn og einstaklinga sem nefndir eru í skjölunum. Þeir hvöttu önnur ríki til að gera slíkt hið sama.

„Hvatningar um að hætta umfjöllun um „Epstein-skjölin“ eru óásættanlegar. Slíkt felur í sér anrækslu á ábyrgð gagnvart fórnarlömbum,“ sögðu þeir. „Það er brýnt að stjórnvöld grípi til afgerandi aðgerða til að draga gerendur til ábyrgðar,“ sögðu sérfræðingarnir. „Enginn er of ríkur eða of valdamikill til að vera æðri lögunum.“