11.nóvember 2014. Umtalsverður árangur hefur náðst í baráttunni við að uppræta kóleru á Haítí en neyðarástand ríkir enn. Það gæti haft skelfilegar afleiðingar í för með sér að gefa eftir í baráttunni nú.
„Ég óttast að sá mikli árangur sem náðst hefur, hafi í för með sér að fólk haldi að vandamálið hafi verið leyst, en svo er alls ekki. 40 greinast á dag með kóleru,“ segir Pedro Medrano, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sem samræmir aðgerði gegn kólerufaraldrinum.
Medrano heimsækir í þessari viku Genf, Osló og Brussel (10.-14.nóvember) til að leita aðstoðar í þessari baráttu. Frá því í október 2010 hafa 707 þúsund manns sýkst af kóleru sem kostað hefur 8 600 manns lífið.

Athyglisverður árangur hefur náðst á þessu ári, en brugðið getur til beggja vona. 5 þúsund tilfelli voru skráð mánaðarlega árið 2013 og fram í ágúst á þessu ári hafði þeim fækkað í eitt þúsund á mánuði. Síðbúnar en miklar rigningar í október settu strik í reikninginn og tilfellin voru þrisvar sinnum fleiri í þeim mánuði en síðustu mánuði. Ástandið gæti jafnvel enn versnað.
Medrano bendir á að auk brýnna úrræða á borð við læknismeðferð og forvarnir, sé þörf á lausnum til lengri tíma. Þar á hann fyrst og fremst við fjárfestingar í mannvirkjum til að tryggja aðgang fólks að hreinu drykkjarvatni og hreinlætiskerfi, skólphreinsun og urðun úrgangs.

Myndir:
1. Medrano á Haítí. .
2. Læknir aðstoðar kólerusjúkling á heilsugæslustöði nærri Port au Prince en þar glímir UNICEF við kólerufaraldurinn. SÞ-mynd /UNICEF/Marco Dormino (31. október 2010)
3. Heimamenn þjálfaðir í forvörnum. SÞ-mynd /Logan Abassi (23.apríl 2014)
4. Ban Kiömoon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna heimsótti Haítí í júlí 2014. Þar kynnti hann áætlun samtakanna og yfirvalda á Haítí ásamt Laurent Lemothe, forsætisráðherra. Hér sjást þeir heimsækja fjölskyldu í Los Palmas. SÞ-mynd/Paulo Filgueiras (14.júlí 2014)


