A-Ö Efnisyfirlit

Félagsmálaráðstefnunni í Kaupmannahöfn fylgt eftir 30 árum síðar

Fánar Sameinuðu þjóðanna og Katar blakta við hún á fundarstað. Mynd: UN Photo
Fánar Sameinuðu þjóðanna og Katar blakta við hún á fundarstað. Mynd: UN Photo

Félagsmálaráðstefna Sameinuðu þjóðanna. Sameinuðu þjóðirnar hafa boðað til annars leiðtogafundar sögunnar um félagslega þróun 4.til 6.nóvember í Doha í Katar.

Önnur félagsmálaráðstefna Sameinuðu þjóðanna er haldinn um 30 árum eftir fyrstu félagsmálaráðstefnuna í Kaupmannahöfn 1995. Á þeirri ráðstefnun samþykktu oddvitar ríkja og ríkisstjórna heimsins metnaðarfulla sameiginlega sýn á félagslega þróun í heiminum.

Samþykkt var Kaupmannahafnar-yfirlýsingin og aðgerðaáætlun. Þar var fólk sett í forgang í þróun og samþykktar 10 skuldbindingar, þar á meðal um upprætingu fátæktar, minnkun ójöfnuðar, tryggingu fullrar atvinnu og félagslega inngildingu.

Starfsmenn stilla sér upp fyrir myndatöku á fundarstað.
Starfsmenn stilla sér upp fyrir myndatöku á fundarstað. Mynd: UN Photo

Félagsmálaráðstefna Sameinuðu þjóðanna: 14 þúsund gestir

Næstu daga munu um 14 þúsund þátttakendur sækja ráðstefnuna í Katar,  þar á meðal þjóðhöfðingar og forystumenn ríkisstjórna, ráðherrar, fulltrúar borgaralegs samfélags, æskulýðsfulltrúar, talsmenn verkalýðshreyfinga og atvinnurekenda.

Pallborðsumræður fara fram og hliðarviðburðir þar sem brotin verða til mergjar málefni á borð við félagslega vernd, ójöfnuð, mannsæmandi vinnu og inngildingu jaðarhópa.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ávarpar fundinn á morgun þriðjudaginn 4.nóvember. Hann mun fara yfir þann árangur sem náðst hefur frrá fyrstu félagsmálaráðstefnunni í Kaupmannahöfn 1995. Jafnframt mun hann gera grein fyrir þeim vanda sem við er að glíma, svo sem vaxandi ójöfnuð, atvinnuleysi, fátækt, átök og mannlegar þjáningar.