A-Ö Efnisyfirlit

Fimm konur myrtar á hverri klukkustund af maka eða fjölskyldumeðlim árið 2025

Á hverri klukkustund eru fimm konur og stúlkur drepnar af maka eða fjölskyldumeðlim.
Á hverri klukkustund eru fimm konur og stúlkur drepnar af maka eða fjölskyldumeðlim.

Alþjóðlegur dagur gegn kynbundnu ofbeldi. Um fjörutíu og sjö þúsund konur og stúlkur voru myrtar af maka eða fjölskyldumeðlim árið 2025.

Þetta er að meðaltali fimm á hverri klukkustund, samkvæmt nýjum gögnum sem Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um eiturlyf og glæpi (UNODC) og UN Women hafa birt.

Niðurstöðurnar, sem birtar voru í samantektinni Femicide Brief 2026 í tilefni af alþjóðlegum degi gegn kynbundnu ofbeldi, undirstrika hversu algeng kynbundin morð eru enn. Jafnframt  að ekki hafi tekist að vernda konur og stúlkur nægilega gegn ofbeldi, einkum á þeirra eigin heimilum.

Árið 2025 voru um 47.000 konur og stúlkur drepnar af maka eða fjölskyldumeðlim um allan heim, sem nemur 60 prósentum allra vísvitandi manndrápa á konum og stúlkum.
Árið 2025 voru um 47.000 konur og stúlkur drepnar af maka eða fjölskyldumeðlim um allan heim, sem nemur 60 prósentum allra vísvitandi manndrápa á konum og stúlkum.

Af þeim sjötíu og átta þúsund konum og stúlkum sem voru myrtar af ásetningi um allan heim árið 2025 voru 60 prósent myrtar af maka eða fjölskyldumeðlim. Tölurnar sýna að þrátt fyrir aukna alþjóðlega viðurkenningu á ofbeldi gegn konum er heimilið enn sérstaklega hættulegur staður fyrir margar þeirra.

Viðvarandi brestir í forvörnum

Kvennamorð eru oft hápunktur endurtekins ofbeldis, hótana og misnotkunar. Í mörgum tilvikum hafa viðvörunarmerki verið til staðar löngu áður en morðið á sér stað. Hindranir við að tilkynna ofbeldi, ófullnægjandi viðbrögð stofnana og takmarkað aðgengi að vernd gera það hins vegar enn að verkum að margar konur eru berskjaldaðar fyrir alvarlegri hættu.

Sima Bahous, framkvæmdastjóri UN Women, lagði áherslu á brýna þörf á að efla verndarúrræði og tryggja að tilkynningar um ofbeldi séu teknar alvarlega.

„Þegar viðvörunarmerki eru ekki tilkynnt, mál eru ekki rannsökuð með fullnægjandi hætti, konur og stúlkur eru ekki verndaðar og gerendur eru ekki dregnir til ábyrgðar geta afleiðingarnar orðið banvænar,“ sagði hún.

Bahous kallaði eftir tafarlausum aðgerðum til að tryggja að konur geti tilkynnt ofbeldi á öruggan hátt, fengið vernd og stuðning áður en það er um seinan, og lagði áherslu á mikilvægi ábyrgðarskyldu og skilvirkra réttarkerfa.

Aðgerðasinnar, leiðtogar, samtök, konur og karlar ganga gegn kynbundnu ofbeldi í Quito í Ekvador. Ljósmynd: UN Women/Johis Alarcón
Aðgerðasinnar, leiðtogar, samtök, konur og karlar ganga gegn kynbundnu ofbeldi í Quito í Ekvador. Ljósmynd: UN Women/Johis Alarcón

Framfarir enn ófullnægjandi

Þótt tíðni manndrápa hafi lækkað á heimsvísu hefur tíðni kvennamorða lækkað mun hægar. Á árunum 2010 til 2025 lækkaði tíðni manndrápa næstum tvöfalt hraðar en tíðni kvennamorða í Ameríku og um 1,5 sinnum hraðar í Evrópu.

Þetta misræmi undirstrikar þörfina á markvissari viðbrögðum við kynbundnu ofbeldi, ásamt ríkari ábyrgð stofnana og viðvarandi fjárfestingu í forvörnum og stuðningi við þolendur.

16 daga átak stendur yfir frá 25. nóvember til 10. desember undir yfirskriftinni UNiTE (sameinuð) til að binda enda á ofbeldi gegn konum og stúlkum: Tryggjum réttlæti, verndum þolendur, bindum enda á refsileysi. Jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UN Women) og fíkniefna- og glæpaskrifstofan (UNODC) hvetja stjórnvöld, alþjóðastofnanir, einkageirann, fjölmiðla og kvennasamtök til að efla sameiginlegt átak til að binda enda á ofbeldi gegn konum og stúlkum.

Alþjóðlegur dagur gegn kynbundnu ofbeld: Í tilefni dagsins hefur UN Women gert fjöld drepinna kvenna sýnilegan í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York með innsetningu 129 appelsínugulra fána, þar sem hver fáni táknar líf sem hefur glatast. Ljósmynd: UN Women/Ryan Brown
Alþjóðlegur dagur gegn kynbundnu ofbeld: Í tilefni dagsins hefur UN Women gert fjöld drepinna kvenna sýnilegan í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York með innsetningu 129 appelsínugulra fána, þar sem hver fáni táknar líf sem hefur glatast. Ljósmynd: UN Women/Ryan Brown

Alþjóðlegur dagur gegn kynbundnu ofbeldi:

Fimm staðreyndir um kvennamorð 

  1. Fleiri en fimm konur og stúlkur eru myrtar á hverri klukkustund.Árið 2025 voru um 47.000 konur og stúlkur um allan heim myrtar af maka eða fjölskyldumeðlim.
  2. Mesta hættan stafar oft af þeim sem standa konum næst.Árið 2025 báru makar og fjölskyldumeðlimir ábyrgð á 60% allra morða af ásetningi á konum og stúlkum um allan heim.
  3. Kvennamorð eru alþjóðleg kreppa, en raunverulegt umfang þeirra er hulið.Ekki er hægt að greina með áreiðanlegum hætti hvort um 4 af hverjum 10 morðum á konum og stúlkum séu kynbundin vegna gagna- og rannsóknaskorts.
  4. Sumar konur eru í enn meiri hættu.Frumbyggjakonur, blaðakonur, stjórnmálakonur, mannréttindafrömuðir og trans konur búa við aukna hættu á kynbundnu ofbeldi og morðum.
  5. Hægt er að koma í veg fyrir kvennamorð – þau eru ekki óumflýjanleg.Snemmtæk íhlutun, öflugri lög, stuðningur við þolendur, ábyrgð gerenda og fjárfesting í kvenréttindasamtökum geta bjargað mannslífum.(Heimild: UN Women)