Hamingja. Alþjóðlegur dagur hamingju.
Finnar eru hamingjusamasta þjóð heims áttunda árið í röð. Auk Finna raða Danir, Íslendingar og Svíar sér í fjögur efstu sætin eins og á síðasta ári og Norðmenn sem fyrr í sjöunda sæti. Alþjóðlegur dagur hamingju er í dag og af því tilefni kom út Hamingjuskýrsla heimsins í dag.
Í skýrslunni er farið í saumana á því hvernig íbúar 140 ríkja meta lífsgæði sín. Stofnun á vegum Oxford háskóla í samvinnu við Gallup, Sameinuðu þjóðirnar og sjálfstæða ritstjórn, vann skýrsluna
Fólk er betra en við höldum
Að þessu sinni var kastljósi beint að mikilvægi umhyggju og gjafmiildi á hamingju fólks. Niðurstaðan er sú að góðvild annara er miklu tengdari hamingju en áður hefur verið talið.
Athugað var sem dæmi hversu margir skiluðu veskjum. Jafnframt var fólk beðið um að giska á hve margir af þeim sem fyndu veski myndu skila þeim. Tvisvar sinnum fleiri skiluðu veskjum en fólk bjóst við.
Trúin á að fólk skili veskjum, sem það finnur, er einn mælikvarði á hamingju. Norðurlöndin raða sér sem fyrr efst á listann og eru einnig í farabroddi í að skila veskjum og hafa mesta trú á að fólk geri það.
Hamingja snýst um samskipti
“Hamingja manna þrífst á samskiptum okkar við aðra. Þeir sem státa af jákvæðum félagslegum tengslum og láta gott af sér leiða uppskera aukna hamingju,” sagði Lara B. Aknin professor í félagssálfræði við Simon Fraser háskóla og einn ritstjóra hamingjuskýrslunnar.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2012 að 20.mars skyldi vera Alþjóðlegur dagur hamingju.
:©UNICEF/Truong Viet Hung
Tíu hamingjusömustu löndin:
- Finnland
- Danmörk
- Ísland
- Svíþjóð
- Holland
- Kosta Ríka
- Noregur
- Ísrael
- Lúxembúrg
- Mexíkó.
