Finnland síðast Norðurlandanna til að hefja stuðning á ný við UNRWA

0
11
Móðir opg barn með matarpakka frá UNRWA
Móðir opg barn með matarpakka frá UNRWA. Mynd: UNRWA

Finnland tilkynnti í dag að landið myndi hefja á ný fjárhagsstuðning við UNRWA. Þar með hafa fjögur Norðurlandanna snúið við ákvörðunum sínum, en Noregur hætti aldrei stuðningi sínum.

Ville Tavior minister of development cooperation. Photo: Wikimedia/CC BY 4.0view terms
Ville Tavior minister of development cooperation. Photo: Wikimedia/CC BY 4.0view terms

Ville Tavior þróunarmálaráðherra sagði á blaðamannafundi í Helsinki í dag að Sameinuðu þjóðirnar hefðu gefið tryggingar fyrir því að innra starf UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálparinnar, yrði eflt.

Danir hófu einnig greiðslur á ný

Fyrr í vikunni tilkynntu Danir að þeir fylgdu í fótspor Svía og Íslendinga og „affrystu” greiðslur sínar.  „Eins og staðan er, er enginn valkostur við UNRWA,” sagði Dan Jørgensen þróunarmálaráðherra.

Norðurlöndin fjögur voru í hópi fimmtán ríkja sem frystu greiðslur sínar til UNRWA eftir að ásakanir á hendur 12 starfsmönnum UNRWA um þátttöku í hryðjuverkunum 7.október komu fram í dagsljósið.

Dan Jørgensen Danish minister of development cooperation. Photo Matt Lindqvist/Norden.org

Dan Jørgensen Danish minister of development cooperation. Photo Matt Lindqvist/Norden.org

Engar áþreifanlegar sannanir borist

UNRWA hefur hins vegar enn ekki fengið í hendur neinar áþreifanlegar sannanir frá Ísraelum um þátttöku þeirra að sögn Jonathan Fowler samskiptastjóra hjá  UNRWA í viðtali við finnska ríkisútvarpið YLE. „Fjárveitendur taka sínar ákvarðanir. Hins vegar ber að hafa í huga að við erum að tala um 12 af 30 þúsund starfsmönnum eða 0.04%.“