
Sýlenskir flóttamenn. 1,8 milljónir flóttamanna höfðu snúið aftur til Sýrlands frá nágrannaríkjum þann 31. ágúst 2026. Auk þess hafa yfir 2 milljónir manna á vergangi innanlands snúið aftur til heimabyggða sinna samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR).
„Þetta er sögulegt og þessi mikli fjöldi sem snúið hefur heim vekur góðar vonir fyrir framhaldið,” sagði Tom Fletcher, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum, á fundi Öryggisráðsins 17. september 2026.
Opinberar tölur um fjölda flóttamanna, sem snúið hafa heim frá Þýskalandi og Svíþjóð, nema þó aðeins fáeinum þúsundum og fáeinum hundruðum. Þessi tvö lönd hafa tekið á móti flestum sýrlenskum flóttamönnum af Evrópuþjóðum frá upphafi borgarastyrjaldarinnar árið 2011. Í Þýskalandi voru í lok árs 2023 um 712 þúsund Sýrlendingar með stöðu flóttamanns eða skylda vernd. Í Svíþjóð var fjöldinn á bilinu 150 til 200 þúsund.

© UNHCR/Andrew McConnell
Milljónir eru enn á flótta
Þótt heimkomum hafi fjölgað verulega frá falli Assad-stjórnarinnar í desember 2024 eru milljónir Sýrlendinga enn á vergangi.
Meira en 15 árum eftir að átökin í Sýrlandi hófust glímir landið enn við eina flóknasta og brýnustu mannúðarkreppa heims. Upphaf borgarastríðsins má rekja til friðsamlegra mótmæla í borginni Daraa í suðurhluta landsins, sem voru brotin á bak aftur með ofbeldi í mars 2011. Mótmælin stigmögnuðust hratt og fyrr en varði brutust út átök um allt landið og milljónir manna hröktust frá heimilum sínum. Alls neyddust 14 milljónir manna til að yfirgefa heimili sín í borgarastyrjöldinni.

© UNHCR/Hameed Maarouf
Nærri 3,9 milljónir Sýrlendinga eru enn flóttamenn erlendis. Það er þó fækkun frá því þegar fjöldinn var mestur, yfir 6,7 milljónir. Tyrkland eitt og sér hýsti flesta, yfir 3,6 milljónir. Sú tala hefur lækkað í um 2,2 milljónir, en nærri 900.000 eru enn í Líbanon, nærri 350.000 í Jórdaníu og yfir 300.000 í Írak samkvæmt UNHCR.
Auk þess eru um 6 milljónir manna á vergangi innanlands í Sýrlandi, en þeir voru flestir um 7,4 milljónir fyrir árið 2025.
Ein af stærstu kreppum heims
Í Sýrlandi ríkir, sem fyrr segir, enn ein stærsta mannúðarkreppa heims þar sem um 70% íbúa þurfa á mannúðaraðstoð að halda. Af 25,6 milljónum íbúa er áætlað að 15,6 milljónir þurfi mannúðaraðstoð og að meira en 7 milljónir búi við alvarlegt fæðuóöryggi samkvæmt OCHA.
Sýrland glímir við versta þurrk í 36 ár. Uppskerubrestur hefur dregið úr hveiti- og bygguppskeru og FAO, Landbúnaðar og matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna, spáir 70 prósenta samdrætti í hveitiframleiðslu. Þurrkarnir hafa einnig haft alvarleg áhrif á helstu vatnsauðlindir landsins og skert aðgengi meira en 10 milljóna manna sem þegar eiga erfitt með að uppfylla grunnþarfir sínar fyrir vatn.
Heilbrigðiskerfið er enn undir miklu álagi eftir margra ára átök. Margir þeirra sem snúa heim mæta skemmdum innviðum, takmarkaðri grunnþjónustu, erfiðleikum við að afla sér lífsviðurværis, vandkvæðum varðandi skilríki og hættu af sprengjum og ósprungnum sprengiefnum, sem þýðir að mannúðaraðstoð verður áfram nauðsynleg um fyrirsjáanlega framtíð.

Mynd: OCHA/ Ali Haj Suleiman
Hvað gera Sameinuðu þjóðirnar?
Sameinuðu þjóðirnar eru mjög virkar í Sýrlandi, einkum með mannúðaraðstoð, stuðningi við flóttafólk, aðstoð við endurreisn og viðleitni til að stuðla að pólitískri lausn. Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra veitamatvælaaðstoð, útvega hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, heilbrigðisþjónustu, skjól og neyðarbirgðir, vernd fyrir konur og börn og stuðning við fólk sem hefur hrakist að heiman vegna átaka og náttúruhamfara.
UNHCR, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, aðstoðar milljónir Sýrlendinga sem hafa hrakist á vergang innan Sýrlands eða flúið til nágrannaríkja. Stofnunin hefur meðal annars á sinni könnu: neyðarbirgðir, verndarþjónustu, samfélagsmiðstöðvar sem bjóða heilbrigðisþjónustu og ráðgjöf og aðstoð við Sýrlendinga sem snúa heim á öruggan hátt og af fúsum og frjálsum vilja.
Þegar sumir Sýrlendingar snúa aftur til heimabyggða sinna aðstoða stofnanir Sameinuðu þjóðanna við að endurreisa innviði, þar á meðal heilbrigðisstofnanir, vatns- og fráveitukerfi, menntaþjónustu og verkefni á sviði fæðuöryggis.
Skrifstofa sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna í málefnum Sýrlands, lengst af undir forystu Geirs O. Pedersen, vinnur með sýrlenskum aðilum og alþjóðlegum hagsmunaaðilum að því að stuðla að pólitískri lausn undir forystu Sýrlendinga á grundvelli ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2254
.
