A-Ö Efnisyfirlit

Fjórar hugmyndir til að bjarga friði

Elders-Sheldonian-debate-peacebuilding 600x400

10.febrúar 2015 Kofi Annan, fyrrverandi aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og Gro Harlem Brundtland fyrrverandi forsætisráðherra Noregs hvetja til þess að Öryggisráðið verði stokkað upp og reglum um kjör aðalframkvæmdastjóra breytt með það fyrir augum að efla Sameinuðu þjóðirnar.


eldersequality-for-girls-and-womenAnnan og Brundtland skrifa grein sem birst hefur í nokkrum stórblöðum í heiminum, þar á meðal The New York Times, fyrir hönd The Elders, hóps fyrrverandi leiðtoga sem vinna saman í þágu friðar og mannréttinda.

Þau benda á að Sameinuðu þjóðirnar hafi verið stofnaðar fyrir sjötíu árum, eins og segir í Stofnsáttmálanum, „til að að bjarga komandi kynslóðum undan hörmungum ófriðar“, en það ætlunarverk hafi ekki tekist því milljónir manna látist nú af völdum slíkra hörmunga frá Nígeríu um Mið-Austurlönd, til Afganistan og Úkraínu,  „…og Sameinuðu þjóðirnar virðast engin úrræði hafa til að bjarga þeim.“

Í greininni leggja „öldungarnir“ fram fjórar hugmyndir til að gera Sameinuðu þjóðirnar öflugri og skilvirkari.

Í fyrsta lagi segja þau að Öryggisráðið njóti ekki lengur virðingar.
„Um allan heim og þó sérstaklega í suðurhlutanum, á fólk erfitt með að skilja að árið 21015 hafi sigurvegararnir fimm í síðari heimsstyrjöldinni enn tögl og hagldir í Öryggisráðinu. Fólk dregur sífellt meira vald þess og lögmæti ákvarðana í efa.“

Til þess að vinna bug á þrátefli um með hvaða hætti breyta eigi skipan Öryggisráðsins, leggja þau til nýja tegund aðildarríkja. Nú eru annars vegarelders fimm ríki sem eiga fasta aðild að ráðinu (og hafa neitunarvald), og hins vegar tíu ríki sem eru kosin til tveggja ára í senn. Annan og Brundtland leggja til að til viðbótar verði kosin ríki til lengri tíma en nú er og þau megi endurkjósa.
„Með öðrum kosti myndu þau öðlast fast sæti að því tilskildu að þau nytu trausts annara aðildarríkja. Væri þetta ekki lýðræðislegra?“

Í öðru lagi er lagt til að ríkin fimm sem eiga fast sæti í ráðinu, lýsi því hátíðlega yfir að þau muni ekki lengur láta ósamkomulag sín á milli hafa í för með sér að ráðið geti ekki gripið til aðgerða, til dæmis þegar – eins og nú er í Sýrlandi- hryllilegir glæpir vofa yfir fólki.
„Látum fimmveldin heita því að beita aldrei aftur neitunarvaldi til þess að tryggja hagsmuni þjóða sinna, heldur einungis þegar þau telja að tillögur um aðgerðir séu heimsfriði og íbúum fremur til ills en góðs. ”

elders-middle-east-peace-initiative 640x270Í þriðja lagi vilja þau tryggja að Öryggisráðið hlýði á raddir þess fólks sem ákvarðanir þess snerta, í stað þess að funda að baki luktum dyrum.
 
Að lokum leggja þau til nýjar leiðir til að velja aðalframkvæmdastjóra „tiil að tryggja að Sameinuðu þjóðirnar fái þess konar leiðtoga sem samtökin þarfnast.“

Annan og Brundtland leggja til rækilega og opna leit að hæfasta frambjóðanda, án tillits til uppruna og kynferðis. Öryggisráðið mæli síðan með fleiri en einum frambjóðanda við Allsherjarþingið sem síðan myndi kjósa aðalframkvæmdastjórann. Hann eða hún sæti síðan í sjö ár, án þess að geta boðið sig fram á ný. Þessi nýja aðferð verði tekin við val næsta aðalframkvæmdastjóra sem á að taka við embætti í ársbyrjun 2017.

„Hann eða hún – og eftir átta karlmenn í röð hlýtur að vera kominn tími á konu – verður þá ekki undir neinum þrýstingi frá aðildarríkjum um að skipa í embætti eða gera maálamiðlanir við aðildarríki, í skiptum fyrir stuðning.“

Ítarlegar er fjallað um þessar fjórar tillögur í yfirlýsingu frá „öldungunum“, the Elders sem lagðar voru fram á Öryggismálaráðstefnunni í München um síðustu helgi elders-korean-peninsula-initiative 640x270

Kofi Annan og Gro Harlem Brundtland eru annars vegar formaður og hins vegar varaformaður The Elders, sem er óháður hópu heimsleiðtoga sem vinna saman í þágu friðar og mannréttinda. Hópurinn var kallaður saman árið 2007 að frumkvæði Nelsons Mandela.
Á meðal annara öldunga má nefna: Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseta Finnland, Jimmy Carter, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Lakhdar Brahimi, diplómat frá Alsír, Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands og Graca Machel, ekkju Nelsons Mandela.

Myndir frá The Elders.