Fólk lifir lengur en of lengi við slæma heilsu

Eldra fólki fjölgar um allan heim.
Eldra fólki fjölgar um allan heim. Myndsamsetning UN News.

Alþjóðlegur dagur eldra fólks. Við lifum lengur en nokkru sinni fyrr. Eru samfélög okkar viðbúin? Árið 2050 verða 2,1 milljarður manna 60 ára eða eldri. Á alþjóðlegum degi eldra fólks hvetur aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til stefnumótunar sem gerir lengri ævi að góðri ævi – með valfrelsi, öryggi og virðingu.

Einstaklingur sem nær 60 ára aldri árið 2025 gæti búist við að lifa að meðaltali í 21,6 ár til viðbótar, sem er næstum þremur árum lengur en árið 2000.

Fólk lifir lengur í öllum heimshlutum. Um 2050, mun fjöldi áttræðra og eldri hafa meir en tvöfaldast.

Árið 2019 náðu meðalævilíkur á heimsvísu 73,1 ári, en fólk gat aðeins búist við að lifa 63,5 af þeim árum við góða heilsu. Það þýðir 9,6 ár sem lifað er með veikindum eða fötlun.

Alþjóðlegur dagur eldra fólks

En slæm heilsa á efri árum er ekki óumflýjanleg og forvarnir skila verulegum ávinningi.

Stofnanir okkar voru hannaðar þegar líf fólks var styttra. Ríkisstjórnir ættu að samþætta langlífi við heilbrigðis-, atvinnu-, mennta-, almannatrygginga-, húsnæðis-, innviða- og ríkisfjármálaáætlanir. Lengri lífaldur krefst þess að við endurhugsumhvernig heilbrigðiskerfi, vinnumarkaðir, félagsleg vernd, menntun eða húsnæðismál styðja við fólk á lífsleiðinni.

Lengri lífaldur krefst þess að við endurhugsum hvernig heilbrigðiskerfi, vinnumarkaðir, félagsleg vernd, menntun eða húsnæðismál styðja við fólk á lífsleiðinni.

Lengri líftími krefst kerfa sem eru byggð til að endast.

Vissir þú?

  • Fjöldi fólks 60 ára og eldri hefur meira en tvöfaldast, úr um 541 milljón árið 1995 í 1,22 milljarða árið 2025 og er áætlað að hann nái 2,1 milljarði árið 2050. Árið 2080 verður fólk 65 ára og eldra fleira en börn yngri en 18 ára.
  • Lífslíkur á heimsvísu hafa náð 73,5 árum árið 2025, sem er aukning um 8,6 ár frá 1995. Fjöldi fólks 80 ára og eldri vex enn hraðar og er áætlað að hann verði meiri en fjöldi ungbarna um miðjan fjórða áratug þessarar aldar og nái 265 milljónum.
  • Eftir því sem íbúar eldast hefur eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu og félagslegum stuðningi aukist mikið, sérstaklega fyrir þá sem eru með sjúkdóma eins og heilabilun, sem er stór orsök ósjálfstæðis og fötlunar meðal eldra fólks. Sérhæfð umönnun er nú nauðsynleg til að mæta þessum vaxandi þörfum.
  • Árið 2025 eru eftirstandandi lífslíkur við 60 ára aldur mjög mismunandi eftir svæðum, frá 17,4 árum í Afríku til 24,9 ára í Eyjaálfu, sem endurspeglar mikinn ójöfnuð í aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagslegri vernd og efnahagslegum tækifærum.
  • Sjá einnig hér og hér.