A-Ö Efnisyfirlit

Allsherjarþingið: Ráðherrar hittu Guterres

António Guterres hitti í dag Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að máli.
António Guterres hitti í dag Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að máli í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Mynd: UN Photo/Evan Schneider.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fund með Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í dag 22.september í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.

Forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sátu sérstakan hátíðarviðburð Sameinuðu þjóðanna í tilefni af áttatíu ára afmæli samtakanna sem sett voru á laggirnar við lok seinni heimsstyrjaldar.

„Andrúmsloftið á fundum hér í dag einkennist mjög af því ástandi sem ríkir í heimsmálunum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdótti
Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Mynd: forsætisráðuneytið

Góður fundur með Guterres

„Ég átti hins vegar góðan fund með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið ötull talsmaður þess að aðildarríkin taki þátt í endurbótum á starfsemi samtakanna. Ýmislegt breytist á 80 árum og Sameinuðu þjóðirnar þurfa að taka mið af breyttum heimi til að geta beitt sér áfram í þágu friðar, öryggis og mannúðar. Enginn dregur í efa mikilvægi Sameinuðu þjóðanna síst af öllu á tímum sem þessum,”sagði Kristrún Frostadóttir forsætisáðherra.

Forsætis- og uta ríkisráðherrar sóttu einnig sérstakan fund kenndan við sögulega kvennaráðstefnu sem haldin var í Beijing í Kína fyrir þrjátíu árum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sat einnig fundinn með Guterres þar sem ástandið á Gaza, árásarstríð Rússa gagnvart Úkraínu og staða Sameinuðu þjóðanna voru til umræðu.
Utanríkisráðherra segir mikilvæga viku fara í hönd þar sem mörg stór mál munu koma til umræðu en hún flytur sína ræðu í allsherjarþinginu nk. laugardag.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var í hópi fjölda starfssystkina sem sýndu Margus Tsahkna utanríkisráðherra Eistlands táknrænan stuðning með viðveru sinni þegar hann ræddi við fréttamenn eftir fund Öryggisráðsins um brot Rússa á lofthelgi landsins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var í hópi fjölda starfssystkina sem sýndu Margus Tsahkna utanríkisráðherra Eistlands táknrænan stuðning með viðveru sinni þegar hann ræddi við fréttamenn eftir fund Öryggisráðsins um brot Rússa á lofthelgi landsins. Mynd:UN Photo/Eric Kanalstein

Munum ekki liggja á liði okkar

„Því miður eru víða blikur á lofti og oft verið friðsamlegra um að litast. Ég vonast samt til þess að þær samræður sem fara fram hér, bæði á hinum formlegu fundum, en ekki síður á göngum Sameinuðu þjóðanna, geti leitt gott af sér. Við munum að minnsta kosti ekki liggja á liði okkar og við munum tala máli friðar og máli alþjóðalaga og auðvitað beita okkur fyrir hagsmunum Íslands hvar sem við komum.“

Auk þessa sóttu forsætisráðherra og utanríkisráðherra leiðtogafund um tveggja ríkja lausnina en þau tíðindi urðu í gær að Bretland, Kanada og Ástralía tilkynntu að þau viðurkenni sjálfstætt ríki Palestínu og Frakkland gerði hið sama í dag.
(Forsætisráðuneytið)