A-Ö Efnisyfirlit

Forsetinn á COP21

ORGsustainable

ORGsustainable

8.desember 2015. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur undanfarna daga tekið þátt í ýmsum viðburðum í París í tengslum við Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP21.

Forsetinn flutti ræðu við upphaf málstofu um endurnýjanlega orku sem haldin var á Sustainable Innovation Forum á vegum Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP).

Í ræðu sinni lýsti forsetinn orkuþróun Íslands frá olíu og kolum til hreinnar orku og hvernig Íslendingar hafa miðlað þekkingu sinni og tækni með því að þjálfa sérfræðinga frá þróunarlöndum og taka þátt í verkefnum m.a. í Asíu, Afríku og Evrópu.

ORGmalthingForseti Íslands flutti einnig ávarp á sérstökum orkudegi sem haldinn er í tengslum við COP21 en þar var fagnað stofnun alþjóðlegs bandalags um nýtingu jarðhita, Global Geothermal Alliance. Ísland hefur ásamt Frakklandi og IRENA haft forystu um stofnun Alþjóða jarðhitabandalagsins en nú þegar eru rúmlega 40 aðilar að bandalaginu, ríki, alþjóðasamtök, alþjóðlegar fjármálastofnanir og bankar. Aðrir ræðumenn voru m.a.  Ségolène Royal umhverfis- og orkuráðherra Frakklands, Adnan Z. Amin framkvæmdastjóri IRENA, Börge Brende utanríkisráðherra Noregs og Rachel Kyte framkvæmdastjóri SE4All átaksins sem Alþjóðabankinn og Sameinuðu þjóðirnar standa saman að.

Í ræðu sinni rakti forsetinn hvernig reynsla Íslendinga af því að nýta jarðhita gæti gagnast öðrum þjóðum til að þróa orkubúskap sinn til sjálfbærni og þannig orðið veigamikið framlag í baráttunni gegn óafturkræfum loftslagsbreytingum. Um leið fagnaði forseti sérstaklega stofnun Jarðhitabandalagsins og þakkaði umhverfis- og orkumálaráðherra Frakklands fyrir framgöngu hennar og stuðning við stofnun bandalagsins.

Loks var Ólafur Ragnar viðstaddur verðlaunaathöfn Sustainia umhverfissamtakanna sem haldin er í tengslum við World Climate Summit í París. Frumkvöðlar á ýmsum sviðum sem og borgir og samtök voru tilnefnd til verðlaunanna og Ted Turner, stofnandi CNN sjónvarpsstöðvarinnar, var heiðraður fyrir fjölþætt framlag hans til umhverfismála og baráttunnar gegn loftslagsbreytingum á undanförnum áratugum.

(Myndir: Efst: Forsetinn ávarpar Sustainable Innovation Forum, Forsetinn tekur þátt í pallborði með Rachel Kyte, SEE4AL, Ségolène Royal, umhverfisráðherra Frakklands og Adnan Z. Amin, IRENA.Heimild: www.forseti.is)