A-Ö Efnisyfirlit

Forsetinn býður Ban á Arctic Circle

Forseti

Forseti

18.janúar 2016. Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna átti fund með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands í tengslum við Heimsþing hreinnar orku  sem haldið er í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Í samantekt Sameinuðu þjóðanna um fundinn segir að forseti Íslands hafi þakkað aðalframkvæmdastjóranum viðleitni hans til að takast á við loftslagsbreytingar. Hafi forsetinn boðið honum að sækja næsta þing Arctic Circle síðar á þessu ári.

Mynd: Forsetaembættið.