A-Ö Efnisyfirlit

Friðarverðlaun Nóbels: Maria Machado sögð „lýðræðisfrömuður”

Maria Machado friðarverðlaunahafi Nóbels 2025.
Maria Machado friðarverðlaunahafi Nóbels 2025. Mynd: WIkimediaCommons

Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur fagnað því að friðarverðlaun Nóbels hafi að þessu sinni fallið í skaut Maria Machado, stjórnarandstöðuleiðtoga Venesúela.

„Þessi viðurkenning endurspeglar skýrar vonir Venesúelabúa um frjálsar og sanngjarnar kosningar, um borgaraleg og pólitísk réttindi og réttarríki,“ sagði talsmaður mannréttindaskrifstofunnar (OHCHR) Thameen Al-Kheetan.

Maria Machado, sem er 58 ára gömul, var meinað að bjóða sig fram til forseta á síðasta ári. Hún hefur neyðst til að vera í felum í heimalandi sínu, en var fangelsuð um skamma stund í janúar á þessu ári. Machado var látin laus í kjölfar mikils alþjóðlegs þrýstings.

Mótmæli í Venesúela í ágúst stl.
Mannréttindi. Mótmæli í Venesúela í ágúst stl. Mynd: Confidencial – Creative Commons Attribution 3.0

Friðarverðlaun Nóbels:Lýðræðisforkólfur”

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sendi henni hamingjuóskir og sagði að hún hafi verið „lýðræðisforkólfur og sameiningarrödd í heimaland sínu, Venesúela.”

Verkfæri lýðræðisins eru „verkfæri friðar,” bætti hann við. Hann minnti á að lýðræði og réttarríki ættu í sívaxandi mæli undir högg að sækja. Friðarverðlaun Nóbels að þessu sinni væru viðurkenning fyrir alla sem vinna að því að vernda borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi um allan heim.

Sjá einnig hér.