9. ágúst 2013. Þema Alþjóðadags frumbyggja sem haldinn er 9.ágúst ár hvert, er að þessu sinni: “Að standa við sáttmála, samninga og annað uppbyggilegt samkomulag.” Markmiðið er að beina kastljósinu að því hve mikilvægt er að standa við gerða samninga á milli ríkja, þegna þeirra og frumbyggja.
Slíkir samningar hafi verið gerðir til að viðurkenna rétt frumbyggja til lands þeirra. “Ég hvet aðildarríki Sameinuðu þjóðanna til að takast á við þann vanda sem frumbyggjar glíma við, sérstaklega útilokun, með því að standa við allar skuldbindingar og rannsaka hvað hægt er að gera, “ segir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi á Alþjóðadegi frumbyggja.
Sameinuðu þjóðirnar minnast dagsins að þessu sinni með athöfn í New York þar sem háttsettir embættismenn taka á móti tvö þúsund fulltrúum frumbyggja hvaðanæva úr heiminum.
Auk þess munu hundruð frumbyggjar koma til Manhattan-eyjar eftir að hafa lagt að baki þúsundir kílómetra á eintrjáningum og á hestbaki til að minnast svokallaðs “Two Row Wampum” samningsins frá 1613 á milli hollenskra innflytjenda og Haudenosaunee-bandalags sex þjóða sem áttu sér höfuðstað í Onondaga í New York ríki.
Navi Pillay, Mannréttindastjóri Sameinuðu þóðanna segir að enn þann dag í dag séu frumbyggjar víða arðrændir og sviptir eignum: “Sagt hefur verið að það sé heilög skylda að standa við samninga og það krefjist heiðarleika af beggja hálfu að framfylgja þeim. Samt sem áður neyðast frumbyggjasamfélög allt of oft til að leita til dómstóla til að neyða ríki til að standa við loforð sín,” segir Pillay í ávarpi sínu á Frumbyggjadaginn. Alls teljast fimm þúsund hópar í um 90 ríkjum til frumbyggja. Þetta eru 370 milljónir manna eða 5% jarðarbúa.
Mynd: Frumbyggjar í Totonicapán í Gvatemala. OHCHR/Rolando Alfaro

