
“Djassinn færir sér í nyt fjölbreytileika heimsins, ferðast áreynsluslaust yfir landamæri og fylkir liði, “ segir Irina Bokova. forstjóri UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. “Þessi tónlistartegund á rætur að rekja til þrælahalds og er ástríðuþrungið heróp gegn hvers kyns kúgun. Djassinn er tungumál frelsisins sem hefur skýra merkingu í hverri einustu menningu.”
Mynd: Irina Bokova, forstjóri UNESCO og Herbie Hancock á tónleikunum í París á föstudag. Mynd: UNESCO/Francois Barrier
Djassinn varð til í Bandaríkjunum í byrjun tuttugustu aldar og á rætur í afrískum hefðum og evrópskri tónlist og hefur þróast á margvíslegan hátt um allan heim.
Alþjóðasamfélagið lýsti yfir á þingi UNESCO í nóvember á síðasta ári að 30. apríl hvert ár skyldi helgaður djassinum um allan heim, með það að markmiði að vekja vitund um gildi djassins í menntunarskyni og sem jákvæðs afls í þágu friðar, einingar, samskipta og aukinnar samvinnu þjóða.
Herbie Hancock, hinn heimsþekkti djasspíanisti er helsti drifkrafturinn á bakvið alþjóðlega djassdag UNESCO.
Aðspurður um hvaða gildi djassinn hefði, sagði Hancock: “Að lifa í augnablikinu, að vinna saman og sérstaklega að bera virðingu fyrir öðrum. Tónlist og þá ekki síst djass, er alþjóðlegt tungumál frelsisins vegna uppruna síns í þrælahaldinu.”
Mörg af stærstu nöfnum djassins hafa tekið þátt í hátíðahöldunum vegna djassdagsins og var þjófstartað í París á föstudag en á meðal flytjenda voru auk Hancock, Barbara Hendricks, Dee Dee Bridgewater og Marcus Miller. Tónleikarnir í New Orleans, fæðingarborg djassins hófust við sólarupprás en þá fylktu þekktir þekktir listamenn liði með Herbie Hancock, góðgerðasendiherra Sameinuðu þjóðanna á Kongó-torgi.
Aðalhátíðin verður í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í kvöld en auk þess eru tónleikar í meir en hundrað borgum, þar á meðal Moskvu, Múskat, Havana og Jerevan. .
Á tónleikunum í New York í kvöld koma fram, auk Herbie Hancock, listamenn á borð við Wynton Marsalis, Wayne Shorter, George Duke, Tony Bennett, Chaka Khan, Angélique Kidjo, Ron Carter og Romero Lubambo, en kynnar eru Robert De Niro, Michael Douglas, Morgan Freeman og Quincy Jones. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu á youtube síðu Sameinuðu þjóðanna (http://www.youtube.com/watch?v=Za4b5pWxi7cand)
Hér má finna upptöku frá tónleikunum í höfuðstöðvum UNESCO á föstudag með tóndæmum og viðtali við Herbie Hancock og fleiri: http://www.youtube.com/watch?v=Waprcfg8vRw
.
