Gasasvæðið. Fjölskyldur hafa smám saman snúið heim á leið mánuði eftir að vopnahlé gekk í gildi á Gasasvæðinu, þar sem það er leyft, að sögn Palestínu-flóttamannahjálparinanr (UNRWA).
Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra hafa náð að brauðfæða eina milljón manna á þessu tíma, að sögn Toms Fletcher, forstjóra OCHA, Mannúðarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Þá hafa verið opnaðar fæðubótastöðvar og sjúkrahús hafa náð að hjúkra fleiri sjúklingum. Götur hafa verið ruddar. Bólusetningar eru hafnar á ný og gert við vatnslagnir. Dreifing vetrarfatnaðar og ábreiðna er hafinn. Geðheilbrigðs- og félags-sálfræðileg aðstoð stendur til boða.
Tom Fletcher mannúðarmálastjóri Sameinuðu þjóðanna talar við barn í skýli á vegum UNRWA í heimsókn til Gasa í febrúar. Mynd: © UNOCHA/Olga Cherevko
Miklir erfiðleikar
„Enn er við ramman reip að draga,“ segir Fletcher. „Við glímum við skriffinskulegar hindranir, opna þarf fleiri hlið og vegi, auk þess sem óöryggi ríkir. Ef þessum hindrunum verður rutt úr braut getum við gert mun meira og bjargað fleiri mannslífum.“
Starfsfólk er á vettvangi og veitir lífsnauðsynlega aðstoð. 75 þúsund manns hafast við í skýlum, sem UNRWA hefur komið upp.
Hafist hefur verið handa við að bólusetja 44 þúsund börn undir þriggja ára aldri við mislingum, hettusótt og öðrum sjúkdómum. Þessar bólusetningar hafa verið óframkvæmanlegar vegna átakanna undanfarin tvö ár. Börnin verða einnig rannsökuð með hugsanlega vannæringu í huga.
Aukinn aðgangur þýðingarmikill
Í kjallaragrein, sem birtist meðal annars á Vísir.is, varaði Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA við því að yfrið nóg væri af áhyggjuefnum. „Ekki er heiglum hent að finna húsaskjól, mat og hreint vatn og vetur nálgast óðfluga. Engan tíma má missa til að vinna bug á sulti og sjúkdómum.”
„Sameinuðu þjóðirnar, þar á meðal UNRWA, hafa sérfræðiþekkinguna og úrræðin til að takast á skilvirkan hátt á við gríðarlegar mannúðarþarfir. Leyfa verður okkur að vinna á frjálsan og sjálfstæðan hátt án tilviljanakenndra og ósanngjarnra takmarkanna á flutning vara og vinnuafls. “
Úrgangur hefur safnast upp á Gasa og er sannkölluð heilbrigðisvá. Mynd:
UNRWA
Vesturbakkinn: líflína
UNRWA hefur einnig þýðingarmiklu hlutverki að gegna sem „líflína“ Vesturbakkans, þar á meðal Austur-Jerúsalem. Hernaðaraðgerðir Ísraela á norðurhluta svæðisins í upphafi árs, urðu til að fólki var stökkt á brott og höfðu mikla eyðileggingu í för með sér.
Á sama tíma hafa ofbeldisverk landnema færst í vöxt.
Roland Friedrich stjórnandi UNRWA á Vesturbakkanum segir að stofnunin hafi 4600 manna starfslið þar. Hún er næst stærsti þjónustuaðilinn og vinnuveitandinn á eftir palestínsku heimastjórninni. UNRWA styður við bakið á 930 þúsund skráðum flóttamönnum á svæðinu.
Rúmlega 48 þúsund börn sækja 96 skóla UNRA fimm daga vikunnar. Það sem af er þessu ári hafa rúmlega 700 læknisverk verið skráð í 43 heilsugæslustöðvum á Vesturbakkanum.
