
7. júní 2012. Ríki heimsins eru enn á hraðferð eftir ósjálfbærri braut þrátt fyrir meir en fimm hundruð markmið sem samþykkt hafa verið á alþjóðavettvangi til að efla sjálfbæra stýringu umhverfisins , að því segir í viðamikilli úttekt á vegum Umhverfisáætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP).
Í fimmtu útgáfu skýrslunnar Global Environmental Outlook (GEO-5) sem gefin er út í aðdraganda Rio+20 Ráðstefnunnar Summit, er lagt mat á árangur 90 mikilvægustu markmiða í umhverfismálum í heiminum og komist að þeirri niðurstöðu að aðeins hafi náðst árangur í fjórum þeirra.
Þau eru að hætta framleiðslu og notkun efna sem þynna ósonlagið, að fjarlægja blý úr bensíni, auka aðgang að hreinsuðu drykkjarvatni og að auka rannsóknir til að draga úr mengun sjávar.
Nokkur árangur hefur náðst við að ná 40 markmiðum svo sem að fjölga Þjóðgörðum og í viðleitni til að draga úr eyðingu skóglendis.
Lítill eða enginn árangur hefur náðst á 24 sviðum þar á meðal í að draga úr loftslagsbreytingum, minnka ágang á fiskstofna og takmarka eyðimerkurmyndun og þurrka.
„GEO-5 skýrslan minnir leiðtoga heimsins sem munu hittast á Rio + 20 ráðstefnunni á mikilvægi þess að stefna að kolefnasnauðu, atvinnuskapandi grænu hagkerfi sem nýtir auðlindir á skilvirkan hátt, “ segir Achim Steiner, forstjóri UNEP.
„Það er kominn tími til að brjótast út úr viðjum ákvarðanafælni, viðurkenna staðreyndir og horfast í augu við sammannlega þætti sem sameina allar þjóðir, bætti hann við.
Mynd:UNEP/Shutterstock
