A-Ö Efnisyfirlit

Gervigreind gæti beint ferðamönnum á sömu fáu staðina

Niagara fosar. Mynd: Shlomo Shalev/Unsplash
Niagara fossar. M

Stafræn tækni og gervigreind eru að breyta því hvernig fólk ferðast og hvernig ferðaþjónusta starfar. Alþjóðlegi ferðaþjónustudagurinn 27. september ber yfirskriftina „Stafræn dagskrá og gervigreind til að endurmóta ferðaþjónustu“.

Þemað tekur einnig mið af því hversu mikilvægt er að þessi þróun sé án aðgreiningar og til hagsbóta fyrir samfélög og starfsfólk í ferðaþjónustu.

Ferðamenn í Sarajevo höfuðborg Bosníu.
Ferðamenn í Sarajevo höfuðborg Bosníu. Mynd: UNRIC

„Gervigreind er að breyta því hvernig ferðamenn velja áfangastaði, hvernig greinin starfar og hvernig ferðaupplifun er hönnuð,” segir António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í yfirlýsingu sinni í tilefni af alþjóðlega ferðaþjónustudeginum. „Hún getur styrkt lítil fyrirtæki, bætt þjónustu og skapað ný tækifæri. En ef ekkert er að gert getur hún beint ferðamönnum á sömu fáu staðina og kerfin og skilið marga verðuga áfangastaði eftir.”

Alþjóðlegi ferðaþjónustudagurinn er haldinn 27. september ár hvert. Á hverju ári er ákveðið þema í brennidepli á alþjóðlega ferðaþjónustudeginum sem varpar ljósi á mikilvægt mál sem hefur áhrif á ferðaþjónustu.

Ný tækifæri í ferðaþjónustu

Í Norrænu ferðaþjónustuáætluninni 2025–2030 er lögð áhersla á hvernig stafræn tækni hefur breytt starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja og samskiptum ferðamanna við áfangastaði. Samfélagsmiðlar, stafræn þjónusta, gögn og gervigreind skapa ný tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki, þar á meðal smærri fyrirtæki á staðnum.

Stafræn verkfæri geta einnig hjálpað áfangastöðum að stjórna flæði gesta, draga úr offjölgun, bæta ákvarðanatöku og hvetja til sjálfbærari ferðavenja. Norðurlöndin setja því stafræna væðingu og nýja tækni, þar á meðal gervigreind, í forgang við þróun nýsköpunar og sjálfbærari ferðaþjónustu.

Aukning í ferðaþjónustu á Norðurlöndum

Ferðaþjónusta var áfram mikilvæg og almennt vaxandi atvinnugrein á Norðurlöndum árið 2025. Í Danmörku voru skráðar 67,7 milljónir gistinátta ferðamanna, sem er 2% aukning miðað við árið 2024, samkvæmt Hagstofu Danmerkur.

Í Finnlandi voru skráðar 23,3 milljónir gistinátta, þar af 16,1 milljón af hálfu heimamanna og 7,2 milljónir af hálfu erlendra gesta; heildarfjöldi gistinátta jókst um 3% en alþjóðlegum gistinóttum fjölgaði um 13%, samkvæmt finnskum hagskýrslum.

Á Íslandi voru skráðar um 10,16 milljónir gistinátta á öllum tegundum gististaða, sem er 9,1% aukning miðað við árið 2024, samkvæmt Hagstofunni.

Helsinki
Helsinki Mynd: Karin Beate Nøsterud/norden.org

Í Noregi voru skráðar 40,6 milljónir gistinátta á gististöðum í atvinnuskyni, sem er hæsta árlega tala sem skráð hefur verið; erlendir gestir stóðu fyrir 14,2 milljónum gistinátta, sem er 14% aukning frá 2024, og um 75% erlendra gistinátta komu frá Evrópu, að sögn Hagstofu Noregs. Í Svíþjóð voru skráðar 70,8 milljónir gistinátta, sem er 2,5% aukning miðað við árið 2024, þar sem sænskir íbúar stóðu fyrir 51,4 milljónum nátta samkvæmt Hagskýrslum um gistingu 2025.

Noregur. Mynd:
Noregur: Karin Beate Nøsterud/norden.org

 

Á öðrum norrænum svæðum var einnig umtalsverð ferðaþjónusta. Á Grænlandi voru skráðar 330.680 gistinætur á hótelum, farfuglaheimilum og öðrum gististöðum sem falla undir hagskýrslur þeirra árið 2025, sem er 16,9% aukning miðað við árið 2024. Í Færeyjum voru skráðar 30.796 hótelgistnóttir á fyrsta ársfjórðungi 2025, sem er 3,1% fækkun miðað við fyrsta ársfjórðung 2024, en innritunum á hótel fjölgaði um 3,9%.