13.ágúst 2013. Alls bárust 200 auglýsingar frá 9 þátttökuríkjum í norræna auglýsingasamkeppni Sameinuðu þjóðanna.
Skapandi fólk á Norðurlöndunum fimm, Eystrasaltsríkjunum þremur og aðliggjandi héruðum í Rússlandi var beðið um að hanna auglýsingu til að vekja fólk til vitundar um sóun matvæl.a;
Almenningur og dómnefnd munu nú leggja mat sitt á framlögin. Almenningur kýs á netinu og stendur kosning yfir á vefsíðu keppninnar til miðnættis 25.ágúst.
Sigurvegari í þeirri kosningu verður tilkynntur 30.ágúst og um leið verður kynnt hvaða 15 hafa verið valin í úrslit.
“Það verður ekki auðvelt verk að velja bestu auglýsingarnar, enda margar þeirra mjög álitlegar,” segir Árni Snævarr, stjórnandi keppninnar. “Við erum líka sérstaklega ánægð með góða svörun í Eystrasaltsríkjunum og Rússlandi.”
Tuttugu þúsund manns hafa þegar skoðað auglýsingar á vefsíðu keppninnar. Allir geta greitt atkvæði þótt þátttaka hafi verið afmörkuð við ríkin níu.
Fyrstu verðlaun, Verðlaun Norrænu ráðherranefndarinnar og fimm þúsund evrur, verða afhent sigurvegara í Kaupmannahöfn 4.október.
Keppnin er samstarfsverkefni UNRIC; Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Brussel og Norrænu ráðherranefndarinnar í þágu herferðar UNEP, Umhverfisstofnunar samtakanna, Think.Eat.Save- Reduce Your Foodprint. Á meðal samstarfsaðila eru Stop Madspild í Danmörku og Feeding the 5,000 í Bretlandi.
Sigur auglýsingin verður birt víða í blöðum og á vefsíðum og bestu auglýsingarnar sýndar á farandsýningum auk þess að vera notaðar í herferð UNEP um allan heim.

