A-Ö Efnisyfirlit

Góðan dag! Bonjour! Guten Tag! Päivää!

Mother tongue

Mother tongue

21.febrúar 2014. Íslenska UNESCO-nefndin og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur efna til fjölmargra viðburða í tilefni Alþjóða móðurmálsdagsins.

 Í tilefni þessa dags í ár vekja UNESCO-nefndin og Stofnun Vigdísar í erlendum tungumálum athygli á starfi fjölmargra aðila sem tengjast ólíkum móðurmálum. Hvatt er til umræðu í skólum um hvernig sé hægt að koma til móts við nemendur sem tala annað móðurmál en íslensku og myndböndum um efnið komið á framfæri. Þessir aðilar efna til nokkurra viðburða í vikunni 21.-28. febrúar í tilefni Alþjóðadags móðurmálsins. 

Efnt verður til samvinnu við skóla um allt land sem felur í sér skráningu einstakra bekkja á tungumálaforða sínum, og haldinn verður sérstakur fyrirlestur um ólík móðurmál í skólakerfinu. Móðurmálsvikunni lýkur með málþingi í Norræna húsinu, föstudaginn 28. febrúar, kl. 15–17, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu íslensku UNESCO-nefndarinnar. 

Alþjóða móðurmálsdagurinn er haldinn til þess að leggja áherslu á að vernd og eflin móðurmálsins er lykill að þáttttöku í samfélagi þjóða og raunverulegum gagnkvæmum skilningi. Að skilja og tala fleiri en eitt tungumál leiðir til betri skilnings á þeim auði sem felst í menningarlegum samskiptum í okkar heimi.
Mörg tungumál eiga undir högg að sækja, ekki síst nú á dögum hnattvæðingar. Helmingur þeirra 7 þúsund tungumála sem töluð eru í heiminum í dag munu sennilega deyja út innan nokkura kynslóða. 96% þeirra eru töluð af aðeins 4% jarðarbúa.
Alþjóð móðurmálsdagurinn er að þessu sinni helgaður „Þætti staðbundinna tungumála í hnattrænum borgararétti: kastljósi beint að vísindum. „Andstætt almennum viðhorfum er augljóst að staðbundin tungumál eru vel í stakk búin til að miðla meginhluta nútímaþekkingar m.a. á sviði stærðfræði, eðlisfræði og tækni. Með því að viðurkenna þessi tungumál ljúkast augu okkar upp fyrir mikilli hálffalinni, hefðbundinni vísindalegri þekkingu sem getur auðgað almennan þekkingargrunn okkar, “ segir Irina Bokova, forstjóri UNESCO í ávarpi sínu í tilefni dagsins.