A-Ö Efnisyfirlit

Gróf mannréttindabrot í Norður-Kóreu

 Nkorea

17.febrúar 2014. “Ólýsanleg mannréttindabrot” hafa verið framin í Norður-Kóreu að mati sérstakrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna.

Nefndin segir að brotin eigi rætur að rekja til “stefnu sem ákveðin er á æðstu stöðum ríkisins” og hvetur til þess að þeim verði vísað til Alþjóðlega glæpadómstólsins (ICC).

Afrakstur nefndarinnar eru 400 síðna verk sem samanstendur af einstökum skýrslum og skjölum en þau byggja á frásögnum fórnarlamba og sjónarvotta.

“Alvara, umfang og eðli þessara brota er með þeim hætti að ljóst era ð þarna er á ferð ríki sem á sér eenga hliðstæðu í samtímanum,” segir nefndin sem skipuð var í mars 2013.

Á meðal brota eru morð, þrælkun, pyntingar, fangelsun, nauðganir, þvingaðar fóstureyðingar og önnur kynferðisbrot, ofsóknir á trúarlegum, kynþáttalegum og kynbundnum forsendum, þvinguð mannshvörf, og svelta fólk um lengri tíma.

Hún kemst að þeirri niðurstöðu að frá árinu 1950 hafi “ofbeldi ríkisins náð út fyrir landsteinana með mannránum og þvinguðum mannshvörfum erlendra ríkisborgara. Þetta eru einstaklega grófar, og umfangsmiklar aðgerðir og einstæðar í eðli sín.”

Formaður nefndarinnar er Ástralinn Michael Kirby, dómari á eftirlaunum en aðrir nefndarmenn voru Sonja Biserko, forsprakki Helsinki nefndar Serbíu og Indónesinn Marzuki Darusman, sérstakur erindreki SÞ í mannréttindamálum Norður Kóreu. 

Sjá skýrsluna í heiild hér.