Gull. Súdan. Ásamt gulli heldur hin lítt þekkta súdanska verslunarvara gúmmíarabík – sem notuð er í gosdrykki, matvæli, snyrtivörur og lyf – áfram að kynda undir stríðinu í Súdan.
Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna, OHCHR, hefur varað við því að stríðandi fylkingar landsins hafa rænt gúmmíarabíki. Verslunarleiðir hafa verið endurskipulagðadr svo hægt sé að nota ágóðann til að viðhalda átökunum.
„Miklar náttúruauðlindir Súdans ættu að gagnast íbúum þess. Það er átakanlegt að það sem við sjáum í dag er allt annað en það,“ sagði Ravina Shamdasani, talsmaður OHCHR. „Þessi auður þjónar aðeins til að grafa undan mannréttindum og ýta undir átök, sem veldur sársauka og þjáningum í gríðarlegum mæli.“
Af hverju þetta skiptir máli:
- Allar stríðandi fylkingar hagnast á sölu gúmmíarabíks
- Verslun með hrávöruna tengist handahófskenndum handtökum og öðrum misgerðum
- Notað í matvæla- og drykkjarvöruverslun, lyf og snyrtivörur
- Smyglleiðir teygja sig í gegnum Tjad, Suður-Súdan, Keníu, Líbíu og Egyptaland
Víðs vegar um Súdan er gúmmíarabík mikilvæg tekjulind og gagnast um fimm milljónum manna. Það er uppskorið af stofnum og greinum akasíutrésins á svæðum sem hafa orðið fyrir miklum áhrifum af átökunum, þar sem alvarleg brot á alþjóðlegum mannúðarlögum og alþjóðlegum mannréttindalögum hafa verið skráð.
Auðveld bráð
Áður en stríð braust út í apríl 2023 eftir að valdaskipti frá herstjórn til borgaralegrar stjórnar sigldu í strand, stóð landið fyrir um 70 til 80 prósentum af heimsútflutningi á hráu gúmmíarabíki. Árlegur útflutningur á gúmmíarabíki var metinn á allt að 183 milljónir Bandaríkjadala. Þetta hefur gert það að verðmætri bráð fyrir hersveitir RSF (Rapid Support Forces) sem talið er að hafi rænt birgðum frá stórri verslunarmiðstöð í El-Nuhud í Vestur-Kordofan og beint þeim vestur til Darfúr og Tjad í maí 2025.
Í dag stendur Súdan enn fyrir „verulegum hluta“ af heimsframboði á gúmmíarabíki, þrátt fyrir átökin og alvarlega mannréttindaáhættu sem OHCHR hefur bent á.
„Það verður að rjúfa þetta stríðshagkerfi og alþjóðasamfélagið verður að fylgjast mun nánar með þeim hrávörum og verslunarleiðum sem hjálpa til við að halda því gangandi,“ fullyrti Ravina Shamdasani talskona mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna.
Hættusvæði
Kaupmenn sem nota flutningaleiðir sem liggja í gegnum svæði í Darfúr og Kordofan í vestur- og miðhluta Súdans, sem eru undir stjórn RSF-sveitanna, hafa orðið fyrir eignaupptöku, óformlegri skattlagningu og búa við mikið óöryggi. Á öruggari norður- og austurleiðum í átt að Port Sudan og Norðurríkinu standa kaupmenn frammi fyrir fjölmörgum eftirlitsstöðvum, „formlegum og óformlegum gjöldum og nokkru smygli yfir landamæri“, segir í skýrslunni.
Fyrir átökin var framleiðslan aðallega á svokölluðu „gúmmíbelti“, þar á meðal Kordofan- og Darfúr-héruðunum, auk Bláu Nílar, Hvítu Nílar, Sennar og Gedaref-ríkjanna, þar sem smábændur og hálf-hirðingjar reiddu sig á uppskeruna sem mikilvæga tekjulind utan uppskerutímans.
Eftirlit
Í skýrslunni kemur fram að RSF hafi beint „verulegu magni“ af gúmmíarabíki í Vestur-Kordofan og hlutum Darfúr í átt að Souq al-Na’am, afvopnuðu svæði sem skilur að Súdan og Suður-Súdan, og síðan lengra inn í Suður-Súdan, Juba og áfram til Mombasa-hafnar í Keníu.
Aðrar leiðir hafa einnig að sögn komið fram, þar á meðal í átt að Tjad og áfram til Douala-hafnar í Kamerún og annarra staða yfir landamæri, þar sem gúmmíið er endurmerkt áður en það er flutt út og unnið.
Sérfræðingar skipaðir af öryggisráðinu hafa áður skráð hvernig rændu gúmmíarabíki hefur verið flutt eftir leiðum sem liggja til Tjad, Mið-Afríkulýðveldisins og Suður-Súdans. „Víðtækt rán RSF á gúmmíarabíki var notað sem eins konar bætur fyrir hermenn í fjarveru launa“ og að minnsta kosti 3.700 tonnum var rænt á milli janúar og júní 2024.
Gullgjöf
Þótt gúmmíarabík sé mikilvægt til að viðhalda átökunum í Súdan, er gullsala „mikil tekjulind“ fyrir súdanska herinn (SAF) og hersveitir RSF, halda höfundar OHCHR-skýrslunnar fram.
Árið 2024 var uppgefin gullframleiðsla á svæðum undir stjórn SAF um 65 tonn, þar af voru um 28 tonn opinberlega flutt út um Port Sudan, með uppgefnu virði um 1,6 milljarða Bandaríkjadala, eða um 48,5 prósent af heildarútflutningi Súdans.
Hins vegar benda skýrslur og opinberar yfirlýsingar til þess að nærri 48 prósent af gullframleiðslu Súdans árið 2024 hafi verið smyglað úr landi, að því er fram kemur í skýrslu OHCHR. Engar upplýsingar eru til um gullframleiðslu á svæðum sem RSF ræður yfir, þótt líklegt sé að góðmálmurinn sé enn unninn og verslað með hann frá námusvæðum í Darfúr og Kordofan, þar á meðal Jebel Amer í Norður-Darfúr, Songo í Suður-Darfúr og Talodi í Suður-Kordofan.
Sjá einnig hér.
