24. Október. Gunnhildur Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur var að störfum í þrjá mánuði í Sierra Leone og Gíneu sem hafa orðið einna harðast úti í ebóla-farldrinum.
Gunnhildur var uppgefin eftir þrjá annasama mánuði og hélt heim frá Sierra Leone í júlí, Heimkoman var ljúfsár.
„Ég var að þrotum komin en döpur yfir að fara. Ég vildi leggja svo miklu meira af mörkum, en ég gat ekki meir í bili. Eftir heimkomuna þjáðist ég um stund af vondri samvisku yfir því að vera ekki til staðar og gera ekki meir.”
Norræna fréttabréf UNRIC ræddi við hana um reynslu hennar af því að berjast við þennan vágest og til hvaða aðgerða þarf að grípa. Sjá hér.
Í fréttabréfinu fjöllum við líka um viðskipti norrænna fyrirtækja í Vestur-Sahara þrátt fyrir andstöðu norrænna ríkisstjórna sem telja slíkt brjóta í bága við alþjóðalög. Einnig könnum við afstöðu Norðurlandanna til einstakra heimsmála í ávörpum norrænu leitðoganna á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, svo eitthvað sé nefnt.

