A-Ö Efnisyfirlit

Guterres:  Arfleifð Carters mun lifa

Jimmy Carter ávarpar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna vorið 1977.
Jimmy Carter ávarpar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna vorið 1977. Mynd: UN Photo/Saw Lwin

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur minnst Jimmy Carter 39.forseta Bandaríkjanna, sem er látinn, 100 ára að aldri.

Í yfirlýsingu sinni minnti Guterres á umtalsvert framlag Carters til friðar og öryggismála, þar á meðal Camp David samningsins, SALT II afvopnuarsamningsins og samningsins um afhendingu Panama skurðarins.

Carter hélt áfram starfi við friðar, mannréttinda og mannúðarmál eftir að forsetatíð hans lauk. Hann miðlaði málum í átökum, sinnti kosningaeftirliti, vann að eflingu lýðræðis og tók þátt í baráttu fyrir upprætingu sjúkdóma og útbreiðslu þeirra. Hann hlaut friðarverðlaun Nobéls árið 2002.

“Carter forseta verður minnst fyrir samstöðu hans með þeim sem minnst mega sín og óbilandi trú hans á almannaheill og sameiginlegt mannkyn okkar.

Arfleifð hans við að tryggja frið, efla mannréttindi og starf að mannúðarmálum mun seint falla í gleymskunnar dá,“ sagði Guterres í yfirlýsingu sinni.