Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að „ekkert geti réttlætt þessi grimmdarverk“ í ávarpi í tilefni af því að þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október 2023
Meira en 1.200 Ísraelar og erlendir ríkisborgarar voru drepnir og alls 251 manneskja var numin á brott og flutt sem gíslar inn á Gaza-svæðið, þar á meðal konur, börn og aldraðir.
„Óbreyttir borgarar voru vísvitandi skotmörk og myrtir á heimilum sínum, í samfélögum sínum og á tónlistarhátíð,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri í ávarpi sínu. „Fangarar gíslanna beittu þá hryllilegu ofbeldi í haldi, þar á meðal pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð, auk kynferðisofbeldis. Sumir voru drepnir af föngurum sínum eða í átökunum sem fylgdu í kjölfarið. Ekkert getur réttlætt þessi grimmdarverk.“
Í ávarpi sínu segist Guterres persónulega hafa hitt fyrrverandi gísla og aðstandendur fórnarlamba og hlustað á frásagnir þeirra af þeirri raun sem þau gengu í gegnum. „Ég syrgi þá sem voru drepnir í árásunum og þá sem létust í haldi. Þjáningar þeirra og varanleg sorg fjölskyldna þeirra mega aldrei gleymast. Þessi hryllingur má aldrei endurtaka sig.“
Ómældar þjáningar Palestínumanna
Aðalframkvæmdastjórinn segir að hin hrikalegu átök sem fylgdu í kjölfarið hafi valdið Palestínumönnum á Gaza ómældum þjáningum, þar á meðal gríðarlegu manntjóni, vergangi og eyðileggingu. „Óbreyttir borgarar búa enn við óbærilegar aðstæður. Þjáningum þeirra verður einnig að linna, strax.“
Þótt vopnahléið í fyrra hafi veitt nokkurn létti segir Guterres að það hafi enn ekki skilað öryggi, fullnægjandi mannúðaraðstoð eða trúverðugri leið til endurreisnar og friðar. Hann hvetur alla aðila til að standa að fullu við skuldbindingar sínar og halda áfram í næsta áfanga vopnahlésins.
„Það er kominn tími til að vopnahléið verði varanlegt. Það er kominn tími til að leyfa mannúðaraðstoð í stórum stíl. Og það er kominn tími til að virða alþjóðalög.“
