A-Ö Efnisyfirlit

Guterres: grafið undan alþjóðasamstarfi

António Guterres í ræðustól í London.
António Guterres í ræðustól í London. © UN Photo/Alba García Ruiz

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar við því að öflugir aðilar leggist á eitt til að grafa undan alþjóðlegu samstarfi. Hann segir að „mannkynið sé sterkast þegar við stöndum saman sem ein heild“.

Guterres flutti um helgina aðalræðuna þegar þess var minnst að 80 ár eru frá því að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna kom saman til síns fyrsta fundar í London.

Aðalframkvæmdastjórinn lagði út frá því að þingið hefði verið kvatt saman í fyrsta skipti aðeins fjórum mánuðum eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk. London var þá í sárum eftir loftárásir sem kostuðu tugi þúsunda lífið. Þetta er að mati Guterres þörf áminning um hvers vegna Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar.

Methodist Central Hall þar sem fyrsti fundur allsherjarþingsins var haldinn 1946.
Methodist Central Hall þar sem fyrsti fundur allsherjarþingsins var haldinn 1946. © UN Photo/Marcel Bolomey

Fundað í loftvarnaskýli

„Til þess að komast til þessa fundastaðar urðu fulltrúar á allsherjarþinginu að fara í gegnum stríðshrjáða borgina, framhjá Buckingham-höll, Westminster Abbey og neðri málstofunni sem höfðu orðið fyrir árásum Luftwaffe. Og þegar sprengjunum rigndi leituðu skelfingu lostnir íbúar skjóls hér í Methodist Central Hall —sem var eitt stærsta loftvarnabirgið í London,” sagði aðalframkvæmdastjórinn.

„Um margt er þessi salur holdgervingur þess sem Sameinuðu þjóðirnar snúast um: staður sem gefur fólki von um frið, öryggi og betra líf,“ sagði Guterres.

Heimurinn 2026 er ólíkur heiminum 1946 

Guterres dró ekki fjöður yfir að starf allsherjarþingins væri oft ekki einfalt eða gallalaust, en hins vegar  „endurspeglaði það veröldina, sundrungu hennar og vonir.“

Hann hugleiddi atburði undanfarins áratugar. „Átökin á Gasasvæðinu, í Úkraínu og Súdan hafa verið grimmilegri en orð fá lýst; gervigreind hefur orðið sífelld nálæg eins og hendi hafi verið veifað og heimsfaraldurinn hellti olíu á eld þjóðernishyggju með þeim árangri að árangur í þróun og loftslagsaðgerðum hefur stöðvast.“

Guterres hitti Keir Starmer forsætisráðherra Breta að máli í heimsókn sinni.
Guterres hitti Keir Starmer forsætisráðherra Breta að máli í heimsókn sinni. © UN/Shaun Ottway

Guterres lagði áherslu á að árið 2025 hafi verið „sérstakleg erfitt” fyrir alþjóðlega samvinnu og grunngildi Sameinuðu þjóðanna.

„Aðstoð var skorin niður. Ójöfnuður dýpkaði. Loftslagsbreytingar jukust. Alþjóðalög voru fótum troðin. Árásir á borgaralegt samfélag hörðnuðu. Blaðamenn voru refsilaust drepnir. Og starfsfólki Sameinuðu þjóðanna var ítrekað hótað eða það drepið við skyldustörf.“

Mikið í húfi fyrir betri heim

 Aðalframkvæmdastjórinn minnti áheyrendur á að þegar Sameinuðu þjóðirnar hófu störf hafi „margir starfsmannanna borið merki stríðs; helti, sár, brunasár,”

„Það er lífseig bábilja- sem fær byr undir vængi með hverjum degi sem líður – að friður sé barnalegur. Að einu „raunverulegu“ stjórnmálin, séu stjórnmál sem snúast um eigin hag og valdbeitingu,“ sagði Guterres.

„En raunveruleikinn fór ekkert framhjá stofnendum Sameinuðu þjóðanna. Þvert á móti höfðu þér upplifað stríð og þeir vissu sem var að friður, réttlæti og jöfnuður eru kjarkmestu, praktískustu og nauðsynlegustu markmið sem til eru.“

Sjá einnig: Fyrsta allsherjarþingið í London 1946 í myndum.