António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar við því að „réttarríkið sé að víkja fyrir lögmálum frumskógarins.“ Í ávarpi á sérstökum fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hvatti Guterres ríki heims til að virða alþjóðalög. Þau væru undirstöða friðar, réttlætis og fjölþjóðasamvinnu í heiminum.
Umræðan í Öryggisráðinu í gær fór fram á sama tíma og átök magnast, spenna eykst og trú á alþjóðastofnanir- og reglur dvínar.
„Réttarríkið er hornsteinn friðar og öryggis í heiminum,“ sagði Guterres og „hjartsláttur sáttmála Sameinuðu þjóðanna.“
Hann minnti á að sáttmálinn, ásamt Mannréttindayfirlýsingunni, Genfar-sáttmálunum og öðrum lagalegum úrræðum, hefðu átt snaran þátt í að koma í veg fyrir enn eina heimsstyrjöld og dregið úr fjölda átaka.
Réttarríkið: Alþjóðalög virt að vettugi
Hann sagði að frumskógarlögmálið hefði ýtt réttarríkinu til hliðar víða um heim. Hann nefndi frekleg brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum. Þar á meðal ólöglega valdbeitingu, árasíar á borgaralega innviði, mannréttindabrot og að hindra flutning lífsbjargandi mannúðaraðstoð.
Frá Gasavæðinu til Úkraínu væri litið á réttarrikið einsog „matseðil”. Ríki teldu sig geta valið hvaða reglum þeim þóknaðist að fylgja. Hann varaði við því að slík brot væru hættuleg fordæmi, ýttu undir refsileysi og græfu undan trausti á milli þjóða.
