Forgangsatriði 2025. Loftslagshamfarir.
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði að loftslaghamfarir yllu „hörmungum og skakkaföllum” í heiminum þegar hann kynnti forgangsatriði samtakanna á árinu 2025 í árlegri ræðu á allsherjarþingi samtakanna.
„Það nægir að líta til hlíða Los Angeles. Þær voru sviðsmynd hamfaramynda en eru nú vettvangur hamfara,” sagði Guterres.
Hann benti á að á sama tíma og jarðefnaiðnaðurinn skilaði gróða, og rakaði til sín niðurgreiðslur úr vösum skattgreiðenda, yllu framleiðsluvörur hans búsifjum.

Loftslagshamfarir: losun ber að ná hámarki í ár
„Daglega líður fólk þjáningar og finnur fyrir afleiðingunum í líf sínu og lífsviðurværi. Hærri tryggingaiðgjöld, hækkandi orkureikningar og hærra matarverð. Og það eru sérstaklega þeir sem höllustum standa fæti; þeir sem minnst hafa gert til að koma af stað þessum hörmungum, sem greiða hæsta verðið.”
Guterres sagði að við yrðum tvíefla sameiginlega viðleitni okkar til að uppfylla markmið Parísarsamningsins um loftslagsbreytingar.
„Niðurstöður reikningsdæmisins eru skýrar: losun gróðurhúsalofttegunda verða að ná hámarki í ár og minnka verulega eftir það, ef við eigum að eiga nokkra von um að takmarka langtíma hækkun hitastigs á jörðunni við 1.5°. Á þessu ári hafa öll ríki heitið að skila inn landsáætlunum (NDCs) um losun, sem ná til alls efnahagslífsins og miða að því að 1.5° markinu verði náð.“
Boðað verður til sérstaks fundar til að fara yfir landsáætlanir ríkja og „ýta á eftir aðgerðum til að 1.5° verði innan seilingar og tryggja loftslagsréttlæti.“
Fjórir fjandar til að takast á við
Aðalframkvæmdastjórinn að í heiminum væri við fjóra fjanda að glíma, sem ef allt færi á versta veg, myndu „setja tilveru okkar á hvolf.”
- Taumlaus átök.
- Mikill ójöfnuður.
- Hömlulausar loftslagsbreytingar.
- Og stjórnlaus tækni.
„Góðu fréttirnar eru að við höfum áætlanir til að taka á þessum vanda. Við þurfum ekki að finna upp hjólið á ný. Við þurfum að fá hjólin til að snúast,“ sagði Guterres.
Aðalframkvæmdastjórinn sagði skiljanlegt að fólki finnist það vera að kikna undan þunga alls óróans, sem einkenndi heimin. Hins vegar væri margt sem glæddi vonir, og engin ástæða til að missa sjónar af framförum og möguleikum.
Hann nefndi að vopnahlé og lausn gísla virtust vera innan seilingar á Gasa. Þá héldi vopnahléið í Líbanon. Guterres minnti á að fjárfestingar í hreinni orku voru nærri tvisvar sinnum meiri en í jarðefnaeldsneytum á síðasta ári. Stúlkur hefðu náð drengjum í menntun, fleiri börn lifðu af en fyrr og HIV smitum fækkaði umtalsvert.
„Og við hefjum árið 2025 með þeirri hvatningu sem Sáttmáli framtíðarinnar og stafræni samningurinn fela í sér. Þeir staðfesta afl og tilgang Sameinuðu þjóðanna á áttræðis afmælisárinu.“
