António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur látið í ljós þungar áhyggjur sínar af miklum niðurskurði framlaga Bandaríkjanna til stofnana Sameinuðu þjóðanna, sem og mannúðar- og þróunarsamtaka.
Niðurskurðurinn hefur áhrif á ýmiss konar mikilvæga starfsemi, frá lífsnauðsinlegri mannnúðaraðstoð, til stuðnings við veikburða samfélag sem er verið endurreisa eftir stríð eða náttúruhamfarir. Einnig þróunarverkefni, baráttu gegn hryðjuverkum og fíkniefnasmygli.
„Afleiðingarnar munu verða sérstaklega skelfilegar fyrir milljónir manna sem standa höllum fæti um allan heim,“ sagði Guterres.

„Við erum gríðarlega þakklát Bandaríkjunum fyrir leiðandi hlutverki þeirra í marga áratugi,“ sagði Guterres. „Bandarískt fjármagn hefur hjálpað stríðshrjáðu fólki, fórnarlömbum hungursneyða og náttúruhamfara með því að tryggja því nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, húsaskjól, vatn, mat og menntun, og svo mætti lengi telja….Það þjónar ekki hagsmunum Bandaríkjanna í heiminum að draga úr hlutverki Bandaríkjanna í mannúðarmálum.“
Dæmi um niðurskurð
Á meðal beinna afleiðinga má nefna:
- Rúmlega 9 milljónir manna í Afganistan verða af heilsugæslu og vernd. Starf hundruða farand-heilsugæslustöðva mun stöðvast og bundinn endi á aðra þjónustu.
- Stöðvun fjármögnunar Bandaríkjanna mun koma niður á 2.5 milljónum manna í norðaustur Sýrlandi, sem þurfa á aðstoð að halda.
- Í Úkraínu heyra verkefni, sem byggjast á dreifingu reiðufjár til einnar milljónar manna á síðasta ári til að sinna mannúðarþörfum þeirra, sögunni til mikillvægum landshlutum.
- Í Suður-Súdan hafa verkefni stöðvast sem höfðu að markmiði að styðja fólk í á flótta undan borgarastríði í nágrannaríkinu Súdan. Landamærasvæðin eru orðin hættulega yfirfull.
-
Niðurskurðurinn kemur meðal annars niður á baráttu gegn fentanýl-smygli. Mynd:
Drug Enforcement Administration (DEA)/
Public domain/ WikimediaCommons - Fíknefna og glæpaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (UNODC) mun neyðast til að stöðva mörg verkefni í baráttunni gegn fíknisefnasmygli, þar á meðal á fentanýli. Draga verður verulega úr baráttu gegn mansali.
- Mörg verkefni í baráttunni gegn Hiv/Alnæmi, berklum, mýrarköldu (malaríu) og kóleru hafa stöðvast.
„Forgangsröðun okkar er alveg skýr,“ sagði Guterres. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma lífsnauðsynlegri aðstoð til skila til nauðstaddra.“
