Guterres óskar nýkjörnum Bandaríkjaforseta til hamingju

0
578
Fjölbreytni lífríkisins

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur sent nýkjörnum Bandaríkjaforseta heillaóskir.

Í tilkynningu frá Stéphane Dujarric talsmanni hans segir að aðaframkvæmdastjórinn óski bandarísku þjóðinni til hamingju með kosningarnar í síðustu viku.

„Hann óskar kjörnum forseta og kjörnum vara-forseta til hamingju. Hann ítrekar að samstarf Bandaríkjanna og Sameinuðu þjóðanna eru ein höfuðstoð alþjóðlegrar samvinnu. Hennar er þörf til að takast á við þær tröllauknu áskoranir sem heimurinn glímir við í dag.”